06.03.1986
Sameinað þing: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2994 í B-deild Alþingistíðinda. (2513)
11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Í því nál., sem lagt hefur verið fram frá hv. allshn. og kynnt hefur verið hér af frsm. nefndarinnar, er lagt til að þessari till., sem hér er á dagskrá, verði vísað frá með rökstuddri dagskrá á þeirri meginforsendu að till. fjalli um efni sem beri að semja um í kjarasamningum en ekki ákvarða með fyrirmælum frá Alþingi, eins og segir í nál. á þskj. 507.
Nú kann það að vera ljóst fyrir hv. nefndarmönnum hvar mörkin eru milli þeirra mála sem annars vegar á að afgreiða hér á hinu háa Alþingi og hins vegar þeirra mála sem eiga að afgreiðast og ákvarðast í almennum kjarasamningum. Mér eru þessi mörk alls ekki og engan veginn ljós.
Ég minni á að fyrir örfáum dögum síðan var lagt fram frv. til l. um ráðstafanir í ríkisfjármálum, verðlags- og lánsfjármálum 1986 til ákvörðunar fyrir hið háa Alþingi, en þetta frv. hafði að geyma margvísleg málefni sem miklu fremur ættu eingöngu að heyra undir Alþingi en ekki undir almenna kjarasamninga. En um það var ekki spurt uppi í Garðastræti þegar samið var um breytingar á skattalögum, verðlagslögum, tollalögum o.s.frv. hvort þeim kæmu þessi mál við eða hvort Alþingi ætti að taka þau til meðhöndlunar og ákvörðunar. Alþingi var einfaldlega gert að leggja blessun sína yfir ákvarðanir sem höfðu verið teknar úti í bæ.
Ég stend hér upp, hæstv. forseti, til að lýsa því yfir að ég blæs á þessa röksemd hjá hv. allshn. og ég tel hana vera afsökun í þeim tilgangi að vísa þessu máli frá.
Ég minni á að það er ekki nema örstutt síðan Alþingi tók það upp hjá sjálfu sér að samþykkja lög um fæðingarorlof. Lengi vel var því haldið fram, eins og hér er gert, að það væri málefni sem ætti að útkljá í almennum kjarasamningum. En Alþingi spurði hvorki kóng né prest, tók á því máli eins og því ber vegna þess að þar var um að ræða réttindamál sem varðaði fólkið í landinu og þessi merka löggjöf náði fram að ganga. Ég hef ekki heyrt nokkurn mann mæla gegn þeim lögum á þeirri forsendu að formsatriði hafi verið brotin í meðferð þess máls.
Í þeirri till., sem hér er til meðferðar og verið er að fjalla um, er lagt til að ólaunuð heimilisstörf séu metin til starfsreynslu. Ég held að Alþingi geti vel tekið afstöðu til þessa meginmáls. Ég er þeirrar skoðunar að ólaunuð heimilisstörf hafi verið vanmetin og þeir, sem hafa unnið þau störf, hafi verið gleymd stétt. Ég vil þess vegna taka afstöðu til þessarar þáltill. og ég styð þá grundvallarskoðun sem fram kemur í henni.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að till. gangi of langt. Þar er gert ráð fyrir því að fjmrh. skuli sjá til þess að í kjarasamningum ríkisins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja verði starfsreynsla við ólaunuð heimilisstörf metin á sama hátt og gert er hjá opinberum aðilum. Ég held að þessi till. sé of klippt og skorin og gefi ekki nægilegt svigrúm. Ég hefði viljað fá útskrift á því hvað þetta þýði í útgjöldum, hvaða áhrif það hefur að öðru leyti varðandi afstöðu ríkisins annars vegar og BSRB hins vegar, hvaða áhrif það hefur á stöðu ríkissjóðs og hvernig þetta mundi vera hugsað og framkvæmt í raun.
Till. sjálf er því ekki nægilega aðgengileg í óbreyttu formi og þyrfti að mínu mati að breytast. Ég hefði talið eðlilegt að hv. allshn. hefði tekið efnislega afstöðu til till., annaðhvort sagt að hún mundi vilja samþykkja hana eða synja henni eða þá gera breytingar á henni, vegna þess að ég held að það sé allra góðra gjalda vert að stíga það skref, sem hér er að meginefni lagt til, að ólaunuð heimilisstörf verði metin til nokkurrar starfsreynslu.
Til þess að undirstrika þessa afstöðu mína og lýsa stuðningi með þetta meginefni þáltill. mun ég greiða atkvæði gegn þeirri frávísunartillögu sem fram kemur frá allshn. Ég held að ef megintillagan er gölluð, þá sé till. allshn. hreinlega vittaus.