06.03.1986
Sameinað þing: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 2995 í B-deild Alþingistíðinda. (2514)
11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég get alls ekki fallist á þau rök hv. allshn. sem koma hér fram varðandi frávísun með rökstuddri dagskrá. Ég tel að rökin séu allt í senn fráleit, fljótfærnisleg og fávísleg. Í raun og sannleika munu þeir, sem greiða atkvæði með rökstuddri dagskrá eins og hún er hér sett fram, vera að segja við sjálfa sig og þjóðina: „Allt sem varðar kjarasamninga og við höfum verið að fjalla um hér á þinginu, bæði á þessu þingi og að undanförnu, er rökleysa og á engan rétt á sér. Við eigum ekki að taka neinar ákvarðanir í þeim efnum.“ Þetta getur vitaskuld ekki staðist.
Í annan stað tel ég að í þessari till. til þál. sé hreyft mjög mikilvægu máli sem varðar vanmetin störf í þjóðfélaginu og að þáltill. taki á því með ákveðnum hætti, leitist við að rétta þar hlut þeirra hópa sem hér um ræðir sem er heimavinnandi fólk.
Það kann að vísu að vera ástæða til þess og ég finn ástæðu til þess með sjálfum mér að huga betur að hvernig framkvæmd skuli hagað. Að mínum dómi hefði nefndin átt að sinna því hlutverki. Það hefði átt að vera hlutverk nefndarinnar að huga að því með hvaða hætti væri hægt að ná þeim markmiðum sem hér eru sett fram, með hvaða hætti væri hægt að hrinda þeim í framkvæmd, því að mér er ljóst að á því geta vissulega verið ýmiss konar tormerki. En þar sem ekkert slíkt liggur fyrir hjá nefndinni og engar upplýsingar um nein tormerki í þessum efnum verður ekki ályktað á annan hátt en þann að nefndin sjái í sjálfu sér ekkert athugavert við tillgr. eins og hún er.
Þó að ég áskilji mér rétt til að fylgja brtt. ef fram kæmu og væru til þess að renna styrkari stoðum undir þetta mál, einkum að því er framkvæmdina varðar, mun ég greiða atkvæði með þessari till. eins og hún var upphaflega lögð fram ef engar aðrar brtt. koma sem mér sýnast vera betri.