06.03.1986
Sameinað þing: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3001 í B-deild Alþingistíðinda. (2517)

11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. 10. þm. Reykv. hefur lagt fram og lýst brtt. Sú brtt. er bæði of seint fram komin og svo er hún skrifleg og þarf því að leita tvöfaldra afbrigða. Það verður ekki nú á þessum fundi leitað slíkra afbrigða. Það þykja heppileg þáttaskil nú til að fresta þessari umræðu. Það eru allmargir á mælendaskrá enn þá og umræðunni verður haldið áfram á næsta fundi. Umræðunni er frestað.

Umr. frestað.