06.03.1986
Sameinað þing: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3005 í B-deild Alþingistíðinda. (2522)

Framkvæmd verðlagseftirlits

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð enda leyfir tíminn ekki annað. Við Kvennalistakonur bentum á það ítrekað í umræðum um kjarasamningana hér á hv. Alþingi í síðustu viku að verðlagseftirlitið væri einn af veikustu hlekkjunum í þessum samningum og þeim efnahagsaðgerðum sem þeim fylgdu. Það kemur mér því ekki á óvart að hér er nú upplýst um verðlagshækkanir sem hafa orðið síðan samningarnir gengu í gildi.

Hæstv. viðskrh. ræddi um verðkannanir og samvinnu við fjölmiðla um að dreifa upplýsingum um verðlag í landinu og eins ræddi hv. þm. Karl Steinar Guðnason um að þetta væri það eftirlit sem á væri byggjandi. Ég vil aðeins koma einu atriði að, sem ég veit ekki hvort hefur heyrst í þessari umræðu áður, og það er: Hvernig dettur mönnum í hug að vinnandi fólk á Íslandi - og menn vita hvað menn vinna mikið á Íslandi - hafi tíma til að setja sig inn í það hvað vörur kosta, t.d. matvörur í hverri búð? Hvernig á fólk að hafa tíma til þess að setja sig inn í þessi mál í smáatriðum og ef til vill fara langar leiðir eftir matvörum til að reyna að kaupa þar sem ódýrast er? Ég segi fyrir mig, ég er útivinnandi húsmóðir og ég hef ekki tíma til þess. Ég verð að kaupa það sem fæst í næstu búð hvað sem það kostar og samt fæ ég, vegna þess að ég vinn hér en ekki einhvers staðar annars staðar, sendar verðlagskynningar Verðlagsstofnunar mánaðarlega eða oftar. Ég hef ekki tímann og það gildir um mjög marga sem í hlut eiga. Ég held að við verðum að horfast í augu við það að eina leiðin til að þessi þáttur samninganna geti staðist er virkt verðlagseftirlit.