06.03.1986
Sameinað þing: 56. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (2523)
Framkvæmd verðlagseftirlits
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svörin og þm. öðrum fyrir þátttöku í þessum umræðum. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hér fari fram umræður um mál af þessu tagi þegar ætla má að menn séu að bregða út af þeim forsendum sem kjarasamningarnir byggðust á. Ég tel að þær upplýsingar sem fram komu hjá hv. 7. þm. Reykv. séu með þeim hætti að það sé algerlega óhjákvæmilegt að viðskrh. taki á þessu máli eigi síðar en þegar í stað. Það þýðir ekki að setja málin þannig upp af ríkisstjórninni að hún hafi áhuga á því að koma hér niður verðlagi, halda aftur af verðbólgu og allt það, en líða það á sama tíma að ríkisstofnanir vaði fram með þessum hætti og hækki sína þjónustu um 100%. Þetta er hlutur sem ekki gengur og þeir trúnaðarmenn flokkanna, sem hér eru á Alþingi inni í bankaráðum bankanna, hljóta að sjá þá skyldu sína næsta, eigi síðar en þegar í stað, að taka á þessu máli því þetta gengur ekkil Hér er verið að svíkjast aftan að þeim grundvallaratriðum sem þessir kjarasamningar byggjast á. Ekkert minna.
Það er alveg laukrétt, sem hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sagði, að til þess að ná utan um þessi mál verður að koma á verðlagseftirliti, raunverulegu verðlagseftirliti, enda byggjast forsendur kjarasamninganna á því og þar með því að ríkisstj. víki frá álagningarfrelsinu sem hún hefur sjálf innleitt. Kjarasamningarnir ganga því, að því er verðlagsmálin varðar, þvert á þá stefnu frjálshyggjunnar sem ríkisstjórnin hefur fylgt.
Ég vil í þessu sambandi, herra forseti, benda á að á undanförnum mánuðum hefur Verðlagsstofnun í vaxandi mæli birt yfirlit yfir verðlag í einstökum verslunum. Mér er kunnugt um það að Verðlagsstofnun hefur sætt ámæli fyrir það í verðlagsnefnd af fulltrúum kaupmanna og atvinnurekenda að birt væru nöfn stofnana eða verslana sem byðu hið hæsta verð eða væru með hina hæstu álagningu. Það verður að vera alveg tryggt varðandi birtingu upplýsinga á komandi mánuðum að samráðsákvæðið við aðila vinnumarkaðarins verði ekki notað af Vinnuveitendasambandinu og Kaupmannasamtökunum til að koma í veg fyrir að nöfn hinna brotlegu aðila verði skilyrðislaust birt.
Ég skora á hæstv. viðskrh. í framhaldi af þessari umræðu að grípa þegar í stað til aðgerða. Ég vil einnig lýsa því yfir fyrir hönd míns flokks að við munum þegar í næstu viku, ef ástæða verður þá til, taka þessi mál upp á nýjan leik ef okkur sýnist slælega á málum haldið af hæstv. ríkisstj. í þessu efni.