10.03.1986
Efri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3013 í B-deild Alþingistíðinda. (2541)
321. mál, tollskrá
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Mál það sem er til umræðu verður hiklaust að teljast eitt mesta klúður sem upp hefur komið í langan tíma því að þau mistök sem hér liggja fyrir munu bersýnilega kosta ríkissjóð hvorki meira né minna en 100 millj. kr. eftir því sem upplýst var í hv. fjh.- og viðskn.
Forsaga þessa máls er sú að ríkisstj. tók ákvörðun um að beita sér fyrir niðurfærslu verðlags í samræmi við nýgerða kjarasamninga. Þar á meðal átti að tryggja að fólksbifreiðar með 2000 cm3 slagrými eða minna lækkuðu í verði um a.m.k. 30%.
Nú er það svo að á þessum tækjum voru þrenns konar gjöld, í fyrsta lagi tollar, í öðru lagi bifreiðagjald og í þriðja lagi söluskattur. Tollarnir og söluskatturinn voru jafnháir í prósentum talið á öllum bifreiðum en bifreiðagjaldið var stighækkandi eftir slagrýmisstærð bifreiðanna og var mjög lágt á orkuþurftarminnstu bílunum en þeim mun hærra og allt upp í 30% af bílum sem eyddu meiri orku og höfðu stærra slagrými. Þessi breyting var reyndar gerð í tíð seinustu ríkisstj. Þá var ákveðið vegna orkusparnaðar að gjöldin á þurftarminni bílum skyldu vera lægri en á stærri bílunum. En við framkvæmdina tekur ríkisstj. ákvörðun um það að bæði skuli lækkaðir tollarnir, að nokkru leyti, og bifreiðagjaldið skuli mjög verulega lækkað. Þannig mun það hafa lækkað allt niður í 12% á stærstu bifreiðunum en hlutfallslega miklu minna á bifreiðunum sem voru þurftarminni vegna þess að það var mjög lágt fyrir á þeim.
Afleiðingin var auðvitað augljós. Hún hlaut að koma þannig út að stóru, dýru bílarnir, þurftarfreku bílarnir, lækkuðu meira en þurftarminni, ódýrari bílarnir lækkuðu minna. Það var þetta sem gerðist, hlaut reyndar að gerast eins og allt var í pottinn búið. Og svo var það auðvitað afleiðing til hliðar við þetta að vísitalan lækkaði alls ekki eins og til stóð vegna þess að það eru minni bílarnir sem hafa einhverja vigt í vísitölu. Þegar þeir lækka miklu minna en áformað var hlaut afleiðingin að verða sú að ekki væri staðið við gefin loforð og fyrirhuguð áform.
Nú er sem sagt verið að reyna að lappa upp á þetta með því að hækka bifreiðagjaldið á nýjan leik og það mjög verulega. Bifreiðagjaldið hækkar úr 12% upp í 30% á þyngstu bílunum, úr 8% upp í 28% á þeim næstþyngstu og úr 4% upp í 20% á þeim sem eru liðlega 2000 cm3 að slagrými. Á móti kemur svo hitt að tollurinn er lækkaður úr 30% í 10%. Þannig er þessi breyting eftir því sem mér skilst af þeim upplýsingum sem gefnar voru í hv. fjh.- og viðskn. En því miður verður að segja þeim ágætu mönnum sem undirbjuggu þetta frv. að í grg. er alls ekki gerð viðhlítandi grein fyrir eðli þessa máls og aðalatriðum og því engin leið að sjá það af grg. hvað í raun er verið að gera þarna.
Það var upplýst á nefndarfundinum að þessi mistök hlytu að kosta ríkissjóð talsverða fjárhæð vegna þess að þegar einu sinni er búið að lækka bílana treysta menn sér ekki til að hækka neina tegund aftur. Afleiðingin verður sú að þessi pennaglöp kosta ríkissjóð hvorki meira né minna en 100 millj. kr. Og þarf þá nokkur að vera undrandi á því að illa gangi með fjármál ríkisins þegar slíkar stórupphæðir renna út milli fingra manna fyrir einhverja einfalda slysni?
Ég hef skrifað undir frv. með fyrirvara fyrst og fremst af þeirri ástæðu að ég tel að það hefði mátt finna vörutegundir og þjónustu til niðurgreiðslu og til lækkunar verðlags sem hefðu komið sér betur fyrir allan almenning í landinu en lækkun á bílum. Því að staðreyndin er auðvitað sú að þeir mörgu sem eru mjög illa settir í þjóðfélaginu í dag, eiga kannske gamlan notaðan bíl og höfðu hugsað sér að selja hann núna með vorinu upp í greiðslur vegna húsnæðislána til að forða sér og fjölskyldu sinni frá gjaldþroti, þeir standa frammi fyrir því að þeir eiga kannske allt að 100 000 kr. minna í höndunum nú en áður en þessi breyting var gerð vegna þess að notuðu gömlu bílarnir lækka í verði. Við skulum því alveg gera okkur ljóst að þessi breyting hefur tvær hliðar, bæði ljósa og dökka.
Ég hefði talið að láglaunafólki væri meiri greiði gerður með niðurfærslu verðlags á þann hátt að matvæli hefðu lækkað í verði, lyf og önnur sú þjónusta sem heyrir undir brýnustu lífsnauðsynjar. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv.