10.03.1986
Neðri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3020 í B-deild Alþingistíðinda. (2557)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseta Nd. hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 10. mars 1986.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Bjarni Guðnason prófessor, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Jón Baldvin Hannibalsson,

5. þm. Reykv."

Bjarni Guðnason hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans hefur verið kannað og þarf ekki að endurtaka það. Bjarni er mættur hér til fundar. Ég býð hann hjartanlega velkominn til starfa.