10.03.1986
Neðri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3021 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Svavar Gestsson:

Með skírskotun til nál. 2. minni hl. félmn., hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar, á þskj. 529 vil ég gera eftirfarandi grein fyrir atkvæði mínu:

Niðurstaða 2. minni hl. er sú, að fengnum nauðsynlegum lagfæringum á frv. þessu sem fluttar eru sérstakar brtt. um, að það sé til bóta frá gildandi Lögum svo langt sem það nær. Ljóst er engu síður að lög um sveitarstjórnarmál hljóta að koma til endurskoðunar innan tíðar samfara breyttri verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga. 2. minni hl. leggur því til að frv. verði samþykkt með breytingum sem eru fluttar á sérstöku þskj.

Ég mun því fyrir mitt leyti samþykkja 1. gr. frv., enda þótt ég telji að ríkisstj. standi illa að þessu máli á alla lund. Og það er sérstaklega athyglisvert að meðan málið hefur verið hér til meðferðar að undanförnu hefur hæstv. félmrh. ekki einu sinni séð ástæðu til þess að vera viðstaddur fund í deildinni. Þrátt fyrir þetta, herra forseti, segi ég já við þessari till., en áskil mér rétt varðandi aðrar till. með tilliti til afstöðu meiri hl. Nd. til þeirra brtt. sem Alþb. flytur á þskj. 530.