10.03.1986
Neðri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3022 í B-deild Alþingistíðinda. (2565)

54. mál, sveitarstjórnarlög

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Hv. 2. landsk. þm. gerði grein fyrir því fyrir hönd Alþfl. að þeir sætu hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Nú ber svo við að þeir greiða atkvæði í stórum stíl um brtt. sem þeir hafa sjálfir flutt. Þar sem þessi brtt. yrði síst til þess að gera lögin betri eða frv. frá því sem er, og slæmt er, segi ég nei.