10.03.1986
Neðri deild: 59. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3026 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)
Um þingsköp
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég vil staðfesta það fyrir okkar hönd, sem erum í meiri hl. hv. félmn., að við höfum notið sérstakrar aðstoðar frá stjórnarandstöðunni til að koma þessu máli fram og vil ég nota þetta tækifæri til að koma þeim þökkum til skila til hv. 3. þm. Vestf. og annarra sem að þessum málum hafa unnið. (KP: Ekki veitir af.)