10.03.1986
Neðri deild: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3030 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)
321. mál, tollskrá
Bjarni Guðnason:
Herra forseti, góðir þingdeildarmenn. Þetta mál, sem hér er nú til umræðu, hefur borið mjög brátt að og þarf að afgreiðast í miklum skyndingi, en það er afleiðing af almennum kjarasamningum þannig að það er sjálfgert mál að samþykkja þetta frv., enda er það til hagsbóta fyrir þá menn sem hafa ráð á því að kaupa bíla. Ég tel mig því vel geta skrifað undir nál. fjh.- og viðskn. Nd.
Hins vegar kom upp hjá félögum mínum í Alþfl. nokkur áhyggja út af réttindum öryrkja því að það er ekki vikið að stöðu þeirra og réttindum í þessu nýja frv. til laga og þess vegna varð það niðurstaða mín að skrifa undir þetta nál. með fyrirvara. Ég tel það nauðsynlegt að skýrt komi fram að Alþfl. leggur á það mikla áherslu að öryrkjar standi jafnvel að vígi og þeir sem eru heilir við þessar breytingar eða tilfærslur á tollum. Þess vegna samþykkjum við Alþýðuflokksmenn þetta í deildinni í trausti þess að hæstv. fjmrh. sjái til þess að hagsmunir öryrkja verði ekki síðri eftir þessa breytingu en þeirra sem heilir eru.
Um þetta hef ég ekki meira að segja nema það að allt er þetta furðulegt, hvernig mál af þessu tagi hefur borist til þingsins, þar sem samþykktar eru úti í bæ breytingar á tollum á bílum. Vinnubrögðin, flumbrugangurinn, rangar reikningsfærslur, mistök. En ekki skal ég orða þetta frekar að sinni. Kannske fæ ég tækifæri síðar. En ég styð þetta frv. með þeim fyrirvara sem þegar hefur komið fram.