30.10.1985
Neðri deild: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (259)
16. mál, húsnæðissparnaðarreikningar
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það datt ekki af mönnum andlitið hér þó að hv. 2. þm. Norðurl. e. lýsti ekki af gleði né ljómaði af samstöðu þegar hann fór að tala um búseturéttarfyrirkomulagið. Við höfum áður orðið vitni að því að sá hv. þm. hefur litla trú á því og greiðir síst götu þess hér á þinginu.
Hv. þm. var óheppinn í samanburði, herra forseti, þegar hann fór að leita til hinna Norðurlandanna um fyrirmyndir í húsnæðismálum. Það er kannske boð um nýja tíma og breytta stefnu hjá Sjálfstfl. að þeir ætli sér í framtíðinni helst að sækja fyrirmyndir til lausnar húsnæðismála til hinna Norðurlandanna. Er það vel og fagna ég því. Ég held hins vegar að hv. þm. fari fjarri raunveruleikanum þegar hann telur það koma í veg fyrir að þeim sem hyggjast afla sér íbúðarhúsnæðis með búseturéttarkjörum gefist kostur á þessum sparnaði að ekki hafa þegar verið sett lög um sjálft fyrirkomulagið. Það er einfaldlega þannig að menn leggja inn á húsnæðissparnaðarreikning á grundvelli þeirra laga sem nú eru um það sparnaðarform og á þeim kjörum sem bankar bjóða og sæta síðan því hvort sú innlögn muni losna þegar og ef þeir fara inn í húsnæði á þessum kjörum. Hver og einn sem leggur inn á þetta sparnaðarform tekur sem sagt þá áhættu að binda fé sitt þarna inni þangað til hann ræðst í að afla sér húsnæðis og skiptir þá ekki máli hvort nú liggur fyrir hvernig hann ætlar að fara að því eða hvort það ræðst seinna. Það er ósköp einfaldlega þannig að hér er um eitt sparnaðarform að ræða sem er í þjóðfélaginu og stendur öllum opið án tillits til þess hvort þeir ætla að ráðast í íbúðarkaup eða húsnæðisöflun á allra næstu árum eða einhvern tíma seinna. Þeir geta engu að síður nýtt sér þetta sparnaðarform. Það getur reyndar Pétur og Páll þó hinum sömu mönnum detti aldrei í hug að koma yfir sig húsnæði. Það er einfaldlega ekki um það að ræða þegar menn leggja inn á þetta sparnaðarform.
Einnig held ég að hv. þm. hafi misskilið samninga eða samstarf Búseta og Alþýðubankans. Að sjálfsögðu er ekki um það að ræða að áðurnefndur banki fái einhvern einkarétt á sparnaði þeirra félagsmanna. Auðvitað getur þetta félag ekki ráðstafað honum með þeim hætti heldur er hér um að ræða samninga þar sem þessi viðkomandi banki býður ákveðið sparnaðarform og ákveðin kjör og þetta stendur félagsmönnum þessa félagsskapar til boða. Að sjálfsögðu er þeim frjálst að fara í aðra banka ef þeir svo kjósa og spara þar. Þetta gefur auga leið, herra forseti, og hv. þm. hlýtur að skilja þetta ef hann hugsar um þetta í ró og næði. Það liggur einfaldlega ekki þannig í málinu. Hvorki Búseti né nokkur annar getur samið um það fyrir hönd einhverra manna' að þeir skuli spara á einum stað og aðeins einum stað. Það t.d. liggur í hlutarins eðli að hjón geta stofnað húsnæðissparnaðarreikning sitt í hvorum bankanum ef þau svo kjósa og njóta þar fulls réttar hvort fyrir sig.
Herra forseti. Hæstv. félmrh. hafði náttúrlega ekki reiknað með þröngri túlkun fjmrn. á þessum lögum. Hann er alltaf fullur bjartsýni, hæstv. félmrh., þegar hann er að bregðast við eða spá í viðbrögð Sjálfstfl. í húsnæðismálum og alltaf kemur Sjálfstfl. honum á óvart. Alltaf er hann á móti, alltaf túlkar hann þröngt o.s.frv., o.s.frv. Og hér stendur hæstv. félmrh. eins og einhver maður úti í bæ og getur ekkert við þessu gert. Þetta eru bara eins og einhver örlög sem yfir hann ganga að allir eru vondir, allir eru á móti honum og allt mistekst í höndunum á honum af því að þetta eða hitt er svona. Hann var einu sinni t.d. á móti háum vöxtum, en hann gat bara ekkert við því gert því að aðrir menn vildu hafa þá o.s.frv. Þetta er óskaplega lágkúrulegur málflutningur, herra forseti, að ráðherra þessara mála komi hér og beri af sér með þessum hætti. Auðvitað á hann að gangast fyrir því að fjmrn. endurskoði hug sinn, og hann á að beita áhrifum sínum innan ríkisstj. til þess að hans vilji og hans stefna í húsnæðismálum nái fram að ganga en ekki skjóta sér endalaust á bak við það að þessi eða hinn flokkurinn eða maðurinn í samstarfsflokknum hafi einhverjar aðrar skoðanir og þar með strandi málið.
En ég vil þá að lokum spyrja hæstv. félmrh. og ég ætla að fara fram á dagsetningar og skýr svör að gefnu tilefni: Hvenær fáum við hér að sjá frv. um búseturétt? Verður það stjfrv. án fyrirvara einstakra hæstv. ráðh. og hv. þm. stjórnarliðsins? Við höfum nefnilega séð þannig pappíra birtast hér og reynast harla lítils virði þar sem viðkomandi ráðherra fær náðarsamlegast leyfi í ríkisstj. og þingflokkunum til að sýna eitthvert mál. Allir hafa síðan á því fyrirvara að þeir muni styðja það og ekkert gerist. Þannig, herra forseti, leið í fyrra heill vetur að það gekk á með yfirlýsingum hæstv. félmrh. um það að nú væri þetta frv. alveg á leiðinni og alveg að koma. Það er verið að vinna í þessu. Það er eins og maður hafi heyrt þessar tilkynningar áður, herra forseti, að þetta frv. sé á leiðinni og það muni koma fram á þessu þingi. Þetta loforð var reyndar gefið fyrst á vormánuðum 1984 og þá var sagt að stjórnarflokkarnir hefðu gert með sér samkomulag um að frv. um búseturétt yrði lagt fram í byrjun næsta þings. Síðan leið sá vetur allur og ekkert stjfrv. birtist um þetta mál. Óþarft er að rekja hvernig þetta hefur leikið þau félög sem búið er að stofna um þetta húsnæðisform. Því er alveg óhjákvæmilegt að spyrja hæstv. félmrh.: Er hann að tala um að frv. líti dagsins ljós t.d. í næsta mánuði þannig að það komist til nefndar fyrir jól og hægt sé að fara að vinna það þar? Er hæstv. félmrh. að tala um desembermánuð? Eða hvenær? Verður það e.t.v. þannig að í kastþröng og tímahraki tveimur eða þremur dögum fyrir þinglok leggi kannske einhver hv. þm. Framsfl. fram eitthvert frv. Fáum við svipaða niðurstöðu í þessu á þessum vetri og við fengum í fyrra? Ég vil lýsa því yfir, herra forseti, að ég uni því ekki að þessum málum verði sífellt drepið á dreif og þau tafin með þessum hætti og ég mun beita mér fyrir því að þetta mál komi hér inn á dagskrá þingsins á allra næstu dögum.