11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3040 í B-deild Alþingistíðinda. (2598)

223. mál, staða lektors í íslenskum bókmenntum

Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Vegna orða hv. 5. þm. Austurl. ítreka ég það, sem ég tók fram, að við meðferð þessara mála hér á hinu háa Alþingi hafa verið fluttar tillögur beinlínis um hina jákvæðu mismunun en þeim verið hafnað. Þess vegna er það oftúlkun hans þegar hann vitnar til laganna þar sem hann þykist geta les.ð slíkt út úr þeim.

Ég hef, eins og ég segi, engu fleiru við þetta að bæta. Ég kynnti mér þetta mál mjög rækilega. Ég hef fylgst með skrifum, bókmenntagagnrýni t.a.m., þessara umsækjenda og ég er í engum vafa um að Helga Kress er mikilhæfur bókmenntafræðingur. Síðasta framlag hennar, sem hún flutti; um Fóstbræðrasögu, kann ég vissulega að meta. En á því að hún var fastur starfskraftur við Háskóla Íslands og að ég hafði þá skoðun að Háskóla Íslands kæmi vel að fá þennan nýja unga mann til starfa, Matthías Viðar, byggðist mín niðurstaða.

Nokkuð finnst mér hann langt sóttur þessi málatilbúnaður allur sem Kvennalistinn hefur hér í frammi, enda mætti nú kannske eitthvað fleira rifja upp í góðu tómi sem sýnir að stundum er holhljómur í málflutningi á þeim bæ.