16.10.1985
Sameinað þing: 3. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (26)
Tilkynning frá forsætisráðherra um breytingar á ríkisstjórninni
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Þegar hæstv. forsrh. mælti fyrir þeirri umræðu, sem hér fór fram, lýsti hann innihaldi þess sem nú væri verið að gera þannig að fyrst og fremst væri formaður Sjálfstfl. að taka sæti í ríkisstj. Þetta var mat hæstv. forsrh. á því hvað væri að gerast.
Hvað þýðir þetta mat hæstv. forsrh.? Hæstv. forsrh. er að segja að til að koma formanni Sjálfstfl. í ríkisstj. hefði verið nauðsynlegt að hreyfa stólana undir hverjum einasta ráðherra Sjálfstfl. í stjórninni. Árangurinn varð fyrst og fremst sá að koma formanni Sjálfstfl. inn en til að það mætti takast, eins og hæstv. forsrh. metur það, þurfti að hreyfa stólana undir hverjum einasta manni. Í venjulegum löndum, í þessum löndum hér í kringum okkur. hefði verið lagt þannig út af þessari miklu stólatilfærslu að hver og einn af þessum ráðherrum hefði ekki staðið sig í sínu embætti. Iðnrh. hefði ekki staðið sig í því embætti. Menntmrh. hefði ekki staðið sig í sínu embætti. Utanrrh. hefði reynst óhæfur og þannig mætti áfram telja.
En það er kannske kaldhæðni þessa mats að t.d. félmrh., sem er með húsnæðismálin algerlega í rúst, fær traustsyfirlýsingu, hann fær að sitja kyrr. Ráðherra efnahagsmála, þ.e. forsrh. sem er með efnahagsmálin í rúst, fær að sitja kyrr, hann fær traustsyfirlýsingu. Svolítið er þetta öfugsnúið.
En þessi yfirlýsing hæstv. forsrh. um að það sem væri nú að gerast væri það eitt að formaður Sjálfstfl. kæmi inn í ríkisstj. þýðir svolítið meira. Hún þýðir að allt annað skuli vera óbreytt. Stefnan skuli vera óbreytt og henni höfum við kynnst að undanförnu. Ráðleysið innan ríkisstj. skuli vera óbreytt. Reipdrátturinn og aurkastið milli ráðherra, sem menn fá að sjá í blöðunum næstum annan hvern dag, skuli vera óbreytt og lausmælgi ráðherranna, þar á meðal hæstv. forsrh., verður líka óbreytt skv. þessu mati hæstv. forsrh.
Þorsteinn Pálsson gaf þá yfirlýsingu hér áðan að Sjálfstfl. muni starfa í þessari ríkisstj. á sama grundvelli og áður. Grundvöllurinn er óbreyttur. Hvernig hefur Sjálfstfl. starfað í þessari ríkisstj.? Hvernig höfum við kynnst því? Sjálfstfl. hefur sjálfur lýst því yfir að honum hafi mistekist í fjármálunum. Þegar Þorsteinn Pálsson les hér langa yfirlýsingu frá þingflokki Sjálfstfl. varðandi fjárlög og endurskoðun þeirra skulum við ekki láta það gleymast að Sjálfstfl. var búinn að samþykkja þessi fjárlög. Hvað sem öllum yfirlýsingum líður liggur fyrir gleggsta lýsing á því sem gerðist frá Birgi Ísl. Gunnarssyni alþm. Hann sagði efnislega: „Þetta var bara óvart hjá okkur, þetta var fljótræði. Við vissum ekki hvað við vorum að gera.“ Ætli það sé ekki sannleikur málsins hvað sem öllum langorðum yfirlýsingum þingflokksins líður? Sjálfstfl. vissi ekki hvað hann var að gera.
Grundvöllurinn skal vera óbreyttur. Ekkert hefur breyst nema það að formaður Sjálfstfl. hefur komið inn í ríkisstj. Þetta er mat forsrh. og Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstfl.
Hverju höfum við kynnst? Forsrh. gefur þá yfirlýsingu um annan ráðherra í ríkisstj. að hann kunni ekki mannasiði. Hann segir að það séu engir mannasiðir að ganga frá samningum um kaup og kjör öðruvísi en bera það upp í ríkisstj. Hann segir um þennan ráðherra: Hann kann ekki mannasiði. Þessi ráðherra svarar til baka: Ég vona bara að þeir misskilji sem mest, Þorsteinn Pálsson og forsrh. Þetta er grundvöllurinn. þetta á víst að vera óbreytt.
Muna menn heldur ekki hverja einkunn Þorsteinn Pálsson gaf forsrh. í sambandi við einhverjar yfirlýsingar. Hann sagði að yfirlýsingar forsrh. væru svo óskammfeilnar að þær lýstu innræti hans. Svona hefur þetta gengið, mín kæru, á víxl og þessu eruð þið að tala um að ekki eigi að breyta.
Varðandi Náttúruverndarráð og Mývatn hafa hæstv. þáv. iðnrh. og menntmrh. skipst á skotum í fjölmiðlunum. Hér eru uppi tvær fiskveiðistefnur. Hæstv. sjútvrh., sem heldur embætti sínu, hefur haldið því fram að hann vildi hafa ákveðna fiskveiðistefnu, svokallað kvótakerfi. Forsrh. lýsir því yfir að hann sé alveg á móti því, hann sé enginn kvótamaður. Við þess konar ástand eigum við að búa áfram.
Þorsteinn Pálsson sagði að sú breyting, sem nú væri gerð, væri eðlileg. Ber að skilja þetta svo að ef einhver ráðherra Sjálfstfl. hefði haldið stól sínum hefði það verið mjög óeðlilegt? Eins konar vantraustsyfirlýsing sýnist mér þetta vera af hálfu Þorsteins Pálssonar. En við skulum horfast í augu við þessi mál eins og þau eru. Hvers vegna er verið að gera þessa breytingu? Það er vegna þess að Sjálfstfl. átti við vandamál að stríða. Það er sannleikurinn í málinu og það veit öll þjóðin og þýðir ekkert að vera að tala um annað.
Sannleikurinn er sá að sá reipdráttur, sem þjóðin öll hefur verið ásjáandi að, gefur ömurlega mynd af Sjálfstfl. Meira að segja Morgunblaðið er farið að tala um Sjálfstfl. sem eins konar ormagryfju, svo að vitnað sé í gamlan leiðara. Þetta er býsna alvarlegt ástand, ekki bara fyrir Sjálfstfl., heldur fyrir þjóðina alla. Sjálfstfl. er langstærsti flokkurinn á Íslandi og hann er allur í molum og upplausn og eilífum reipdrætti og ráðherrarnir standa í aurkasti hver utan í annan. Haldið þið að þetta hafi ekki alvarlegar afleiðingar, ekki bara fyrir Sjálfstfl. heldur fyrir stjórnmálin á Íslandi? Fyrir utan persónupotið allt saman fáum við að kynnast því að það er uppi hver höndin á móti annarri í hverjum málaflokknum á fætur öðrum. Við getum talað um sjávarútvegsmál eða landbúnaðarmál. Við getum talað um kartöflumál, við getum talað um skattamál. Í engum af þessum málaflokkum verður séð að Sjálfstfl. hafi einhlíta, ákveðna stefnu. Þetta er alvarlegt og það er alvarlegt fyrir þjóðina alla ef þetta á að halda svona áfram.
Þingflokkur Sjálfstfl. lýsti því yfir að fjárlagafrv. væri ómark. Hæstv. fjmrh. Þorsteinn Pálsson sagði hér áðan að þjóðhagsáætlun þyrfti að endurskoða. Sannleikurinn er sá að ekki bara fjárlagafrv. er ómark skv. því sem hér hefur verið sagt. Það er allt saman ómark. Það stendur ekki steinn yfir steini í þjóðhagsáætlun, í lánsfjárlögum eða hverju því sem við viljum telja upp. Þetta er hið alvarlegasta mál.
Núna standa þeir upp hver af öðrum, núv. fjmrh., fyrrv. fjmrh., forsrh. og ég veit ekki hver, og segja: Vandamál nr. eitt hjá þjóðinni er erlend skuldasöfnun. Skyldu menn hafa heyrt það áður? Hvað skyldi ég oft hafa gert þetta að umræðuefni hér? Ég flutti meira að segja í fyrra till. um að skera þetta niður. En hverjir hafa þá safnað þessum skuldum? Er það bara fólkið í landinu? Voru þessir ráðherrar stikkfrí? Voru þingmenn stjórnarflokkanna stikkfrí? Nei, þeir samþykktu þessar erlendu lántökur. Þeir felldu hugmyndir um að skera þetta niður. Þar erum við þó sammála. En við höfum bara heyrt þessar yfirlýsingar allt of oft áður frá núverandi stjórnarherrum. Menn settu sér mörk, hótuðu stjórnarslitum ef ekki yrði við staðið í þessum efnum, en ekkert gerðist. Ég ætla að vona að nú gerist eitthvað.
Að lokum einungis þetta, herra forseti: Ég vil ekki að það reynist rétt að ekkert hafi breyst við þá breytingu sem nú hefur orðið í ríkisstj. Ég ætla að vona og ég held að menn ætlist til þess að mikið hafi breyst. Það er m.a. og ekki síst ætlast til þess af Þorsteini Pálssyni að hann sýni tilþrif í sínu embætti og nái raunverulegum árangri í því að ná tökum á efnahagsmálunum. Undir því á ekki bara Sjálfstfl. mikið, það skiptir minnstu. Undir því á þjóðin mikið að vel takist til og að það verði raunveruleg breyting og það er ætlast til þess af Þorsteini Pálssyni að hann taki til hendinni.