11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3054 í B-deild Alþingistíðinda. (2620)

310. mál, störf milliþinganefndar um húsnæðismál

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Þegar ég heyrði hv. 8. þm. Reykv. Stefán Benediktsson tala um milliþinganefnd í húsnæðismálum rifjaðist upp önnur setning sem ég veit að hæstv. forseti þekkir vel: „Þeir segja mest af Ólafi konungi sem hvorki hafa heyrt hann eða séð“.

Ég hygg að hv. þm. sé ekki kunnugur störfum þeirrar nefndar. Það náðist fullkomið samkomulag innan nefndarinnar um það hvaða úrbætur væru mest áríðandi í húsnæðismálum. Það er að vísu rétt að stjórnarandstaðan lagði til að frekari fjármunum yrði varið til húsnæðismála heldur en stjórnarmeirihlutinn treysti sér til eins og jafnan er. Ég þekki ekkert dæmi þess úr sögu Alþingis að stjórnarandstaðan hafi verið ánægð með það framlag sem lagt hefur verið til húsnæðismála. Það er eðli málsins samkvæmt. Innan nefndarinnar ríkti svo mikil eindrægni að allir nefndarmenn gátu skrifað undir álit sem birst hefur. Ég hef það því miður ekki hér hjá mér en ég held að óhætt sé að segja að lagður hafi verið grunnur að því að frekar yrði unnið að þessum málum. Ræðutíma er lokið og frekari umræður verða að bíða betri tíma