11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3055 í B-deild Alþingistíðinda. (2623)
314. mál, fjárhagsvandi Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar
Fyrirspyrjandi (Jón Sveinsson):
Herra forseti. Á þskj. 581 hef ég leyft mér að leggja fyrir iðnrh, fsp. í tveimur liðum um úrræði vegna fjárhagsvanda Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Tilefni þessarar fsp. er fyrst og fremst slæm fjárhagsstaða fyrirtækisins, en skuldir þess nema nú 1400 millj. kr. Áætlaðar tekjur eru hins vegar, miðað við óbreytta gjaldskrá 1986, 135 millj. kr. en áætluð gjöld, miðað við verðlagsforsendur eftir 1. mars, nema 140 millj. kr. án afskrifta. Fyrirtækið aflar m.ö.o. ekki tekna fyrir rekstrargjöldum og vöxtum, hvað þá fyrir afskriftum sem áætlað er að nemi 85 millj. kr. árið 1986.
Ástæður þessa ástands má fyrst og fremst rekja til fjárfestingarlána í bandaríkjadölum og óhagstæðrar gengisþróunar frá stofnun fyrirtækisins fram á síðasta ár. Allt hefur verið gert til að halda í horfinu og er nú svo komið að gjaldskrá fyrirtækisins er með hæstu gjaldskrám hitaveitna á landinu eða 1760 kr. á hvern mínútulítra. Lætur nærri að upphitunarkostnaður á starfssvæði fyrirtækisins sé þrefaldur upphitunarkostnaður íbúða á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Er algengt að fjölskyldur greiði 4000-5000 kr. á mánuði fyrir meðalstórt einbýlishús.
Um langt skeið hefur stjórn hitaveitunnar staðið í viðræðum við stjórnvöld um aðstoð vegna fjárhags- og rekstrarvanda fyrirtækisins til lækkunar á upphitunarkostnaði neytenda. Tók fyrrv. iðnrh. Sverrir Hermannsson málaleitan stjórnarinnar vel og gaf beinlínis fyrirheit um að ríkissjóður aðstoðaði með yfirtöku á tilteknum hluta skulda fyrirtækisins. Í þá von hefur stjórn fyrirtækisins haldið þó að lítið hafi orðið um efndir enn sem komið er. Því er spurt í fyrsta lagi til hvaða úrræða núv. iðnrh. hyggist grípa til að létta fjárhagsvanda HAB til frambúðar.
Vegna nýgerðra kjarasamninga barst hitaveitustjórninni nýlega skeyti iðnrn. þar sem farið var fram á lækkun gjaldskrár um 7%. Af þessu tilefni væri fróðlegt að fá upplýst hvort stjórnvöld telji fullnægjandi að einstakar hitaveitur lækki um enn lægri hundraðstölu en 7%, eins og t.d. Hitaveita Selfoss sem lækkað hefur um 5%, Hitaveita Rangæinga sem lækkað hefur um 3% og Hitaveita Akureyrar sem lækkað hefur um 2,7-3%. Beint tekjutap Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, miðað við núverandi gjaldskrá, vegna 7% lækkunar er 71/2 millj. kr. Eykst halli fyrirtækisins beint sem þessu nemur. Er ekki nema von að stjórn fyrirtækisins staldri hér við og spyrji hvort ekki komi neitt annað í staðinn en stöðugt verðlag og minni verðbólga sem vissulega er ánægjulegt. Einnig virkar það ankannalega gagnvart erlendum lánveitendum, sem hitaveitan þarf óhjákvæmilega að leita til á þessu ári, að jafnilla statt fyrirtæki fjárhagslega skuli geta lækkað gjaldskrá sína jafnmikið og hér um ræðir án þess að neitt áþreifanlegt komi í staðinn frá stjórnvöldum. Einhvers staðar þætti slíkt ekki góð fjármálastjórn. Þá hefur verið látið í það skína við veitingu ríkisábyrgða á lánum fyrirtækisins að gjaldskráin yrði helst að hækka reglulega miðað við byggingarvísitölu. Beiðni um lækkun nú skýtur því skökku við fyrri ábendingar um hækkanir.
Ég held ég geti fullyrt að stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar sé öll af vilja gerð að lækka gjaldskrár fyrirtækisins. Heil brú verður hins vegar að vera í störfum hennar hverju sinni. Er því ekki óeðlilegt að fyrirtækið vilji fá upplýsingar stjórnvalda um það til hvaða úrræða þau hyggist grípa til að mæta lækkun gjaldskrár um 7%. Því spyr ég í öðru lagi iðnrh. til hvaða úrræða hann hyggist grípa til að íbúar á starfssvæði Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar fái notið sambærilegrar lækkunar á orkuverði og aðrir landsmenn eftir nýgerða kjarasamninga.