11.03.1986
Sameinað þing: 57. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3056 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)

314. mál, fjárhagsvandi Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Á þskj. 581 ber hv. þm. Jón Sveinsson fram fsp. til iðnrh. um úrræði vegna fjárhagsvanda Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Hann vék einnig að öðrum málum sem ekki snerta beint þessa fyrirspurn og væri gaman að efna til umræðu um málið í heild, taka það frá byrjun, vita hvaða áætlanir voru gerðar um heitavatnsnotkun, hvernig þær hafa staðist o.s.frv. Vandi Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar stafar engan veginn allur af gjörðum ríkisstj.

Fyrsta spurning hv. þm. er: „Til hvaða úrræða hyggst iðnrh. grípa til að létta fjárhagsvanda Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar til frambúðar?"

Svar mitt er: Vandamál Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar er nú til athugunar hjá iðnrn. og sérstök ráðherranefnd, sem skipuð var á 228. fundi ríkisstj. 29. okt. s.l., er að kanna málið.

Í útgjöldum hitaveitunnar er vaxtakostnaður allsráðandi eins og fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda. Hitaveitan á ekki fyrir vöxtum svo að nauðsynlegt er að losna við afborganir af lánum eins lengi og hægt er. Á vegum iðnrn. hafa talsverðar viðræður farið fram við heimamenn um lausn þessa vanda.

Sem iðnrh. er ég reiðubúinn, með vissum skilyrðum, að beita mér fyrir lausn sem byggist á sameiningu orkufyrirtækja í Borgarfirði í eitt fyrirtæki, með þátttöku ríkisins, fyrirtæki sem tæki að sér öll réttindi og skuldbindingar starfandi rafveitna og hitaveitunnar. Slík sameining næði til hitaveitunnar, RARIK, Rafveitu Akraness, Rafveitu Borgarness, rafveitunnar á Hvanneyri og Andakílsárvirkjunar sem eiga töluverðar veðhæfar eignir. Þetta fyrirtæki virðist geta orðið nægilega öflugt til að annast alhliða þjónustu, komast í bein viðskipti við Landsvirkjun og ráða við þær skuldbindingar sem fyrirtækið tekur á sig. Þessi fyrirtækjastofnun er í samræmi við óskir heimamanna um að Andakílsárvirkjun fái að kaupa eignir RARIK á svæðinu og komast í bein viðskipti við Landsvirkjun.

Ef fyrirtækin verða sameinuð þarf Andakílsárvirkjun að vera með og hið nýja fyrirtæki þarf að fá heimild til að kaupa af ríkinu eignir RARlK á svæðinu og taka við hlutverki þeirra. Af þeirri hagræðingu sem hið nýja skipulag gerir kleift mundi töluvert nýtt fjármagn verða til. Eignarhluti ríkisins í tilsvarandi fyrirtækjum er á milli 20 og 40%. Slíku eignarhlutfalli ríkisins mætti ná með því að ríkissjóður yfirtæki hæfilegan hluta af þeim skuldum sem eftir verða þegar skuldir umfram eignir hafa verið gerðar upp á milli eigenda þessa fyrirtækis, Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Fyrir utan eignir RARIK á svæðinu, sem renna til fyrirtækisins, greiðir ríkið stofnframlag sitt með yfirtöku skulda ef heimamenn samþykkja þessa ráðstöfun. Þetta er ein hugmynd.

Önnur spurning: „Til hvaða úrræða hyggst iðnrh. grípa til að íbúar á starfssvæði Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar fái notið sambærilegrar lækkunar á orkuverði og aðrir landsmenn eftir nýgerða kjarasamninga?"

Svar mitt er: Í samræmi við niðurstöður nýgerðra kjarasamninga og samþykkt ríkisstj. 11. febr. s.l. var hitaveitunni sent eftirfarandi hraðskeyti:

„Iðnrn. vísar til samþykktar ríkisstj. frá 11. þ.m. og í framhaldi af því tilmæla til sveitarfélaga um lækkun á gjaldskrám rafveitna um 10% frá núgildandi tölum og lækkun á gjaldskrám hitaveitna um 7% frá núgildandi tölum.

Með vísan til framanritaðs óskaði ráðuneytið eftir því að hitaveitur sendu nýjar gjaldskrár til staðfestingar ráðuneytisins með gjaldtöku 1. mars 1986 þar sem allir taxtar lækki um 7%. Ráðuneytið tekur fram að þar sem hér er um ívilnandi stjórnaraðgerðir að ræða geti gjaldskrár tekið gildi frá og með 1. mars 1986 þótt nýjar gjaldskrár verði birtar eftir þann dag í Stjórnartíðindum.“

Engin viðbrögð hafa enn þá borist frá Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar við þessari málaleitan.