11.03.1986
Sameinað þing: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3066 í B-deild Alþingistíðinda. (2640)

315. mál, fjárstuðningur við Handknattleikssamband Íslands

Flm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Á þskj. 582 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um fjárstuðning til Handknattleikssambands Íslands ásamt með fimm öðrum hv. þm. Till. felur í sér að skora á hæstv. fjmrh. að veita Handknattleikssambandinu 5 millj. kr. í fjárstuðning í verðlauna- og viðurkenningarskyni í tilefni af frábærri frammistöðu íslenska landsliðsins í heimsmeistarakeppninni í Sviss.

Um þessa till. er óþarfi að fara mörgum orðum, herra forseti. Þjóðin hefur fylgst með að undanförnu og dáðst að frammistöðu íslenska handknattleikslandsliðsins í umræddri keppni og ég held að ég mæli fyrir munn meiri hluta þjóðarinnar þegar ég segi að við höfum fyllst stolti og gleði yfir þeim árangri sem þar hefur náðst.

Handknattleikur er útbreidd og vinsæl íþrótt og þess vegna er það með ólíkindum að jafnlítil þjóð sem við Íslendingar erum getum teflt fram flokki ungra manna sem ná svo langt í íþrótt sinni sem raun ber vitni, að hljóta 6. sæti í keppni hinna bestu og tryggja sér rétt til þátttöku í næstu Ólympíuleikum. Þessi árangur og þessi frammistaða hefur vissulega aukið hróður Íslands. Það er ekki aðeins góð landkynning þegar íslensk ungmenni vinna afrek í nafni þjóðarinnar, heldur hefur þessi árangur langvarandi áhrif að því leyti að hann mun væntanlega og vonandi auka mjög útbreiðslu og þátttöku í þessari íþrótt og íþróttum almennt. Frammistaða af þessu tagi höfðar mjög til æskufólks og vekur með því heilbrigðan metnað, stuðlar að aukinni líkamsrækt og hollri tómstundaiðju sem ég leyfi mér að fullyrða að er besta meðalið gegn þeim hættum sem leynast hvarvetna í þjóðfélaginu gagnvart æskunni.

Ég hef því miður ekki enn handbærar upplýsingar um þann kostnað, sem þessi keppni hefur haft í för með sér fyrir Handknattleikssambandið, en það gefur auga leið og er fullljóst að allur undirbúningur og keppnin sjálf hefur kostað gífurleg útgjöld og fyrir lítið fjárvana íþróttasamband er nánast útilokað að ná endum saman.

Ég held að þjóðin vilji fúslega veita Handknattleikssambandinu aðstoð í þeirri viðleitni sinni að tefla fram liðum sem eru vel undirbúin og ná slíkum árangri, sem við höfum orðið vitni að, og jafnframt að halda áfram uppbyggingu íþróttarinnar og undirbúa sem best þegar í stað þátttöku okkar í næstu stórmótum eins og t.d., og ekki síst, næstu Ólympíuleikum. Handknattleikssambandið fær hluta af þeim fjárveitingum sem Alþingi samþykkir á hverju ári í fjárlögum til íþróttahreyfingarinnar. Sú upphæð er því miður mjög lág og er ekki nema brot af þeim útgjöldum sem þetta íþróttasamband hefur þurft að standa undir. Ég geri ráð fyrir því og vonast til þess að Alþingi muni áfram veita ríflega peningum til íþróttahreyfingarinnar með afgreiðslum sínum á fjárlögum. En ég held að þetta afrek, sem nú hefur verið unnið af okkar handknattleiksmönnum, sé það stórt og glæsilegt að það verðskuldi nokkra viðurkenningu, sérstaka aukafjárveitingu, og Alþingi geti þannig látið í ljós þakklæti sitt og stuðning við það mikla starf og þau miklu afrek sem hér hafa verið unnin.

Með flutningi þessarar till. er þess vegna lagt til að Alþingi Íslendinga sýni í verki vilja sinn og, eins og segir hér í grg. með tillögunni, „aðdáun á frammistöðu íslenska landsliðsins“ með því að samþykkja fjárstuðning að upphæð 5 millj. kr. Það er ekki stór upphæð og ég er sannfærður um að mikill meiri hluti Íslendinga telur það ekki eftir sér að láta þetta litla brot af sínum skattpeningum renna til þessa íþróttasambands í kjölfarið á þeim glæsilega árangri sem náðst hefur.

Ég vonast til þess að þessi tillaga fái hér góðar undirtektir og hraða afgreiðslu. Ég tel það vera til sóma fyrir Alþingi að afgreiða jákvætt þessa tillögu og það sem allra fyrst meðan enn er stemmning meðal Íslendinga og skilningur á því málefni sem hér um ræðir.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði till. vísað til hv. fjvn.