11.03.1986
Sameinað þing: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3067 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)
315. mál, fjárstuðningur við Handknattleikssamband Íslands
Helgi Seljan:
Herra forseti. Um þessa till. vil ég aðeins segja fáein orð. Ég er vissulega glaður yfir þeim árangri sem handknattleikslið okkar náði á nýafstöðnu heimsmeistaramóti. Það vaska lið er vissulega alls góðs maklegt og liðveislu vissulega þörf í því sem ýmsu öðru. En aðgátar er líka þörf af hálfu fjárveitingavaldsins hversu hrifnæmir og opnir hugir sem standa hér á bak við og hversu opnir hugir manna kunna að vera einmitt nú meðan stemmning er fyrir þessu máli, eins og hv. 1. flm. minnti á.
Vissulega hafa mörg góð afrek og verðlaunaverð verið unnin af okkar íþróttafólki og vissulega ástæða til að veita því aðstoð í ströngum æfingum og mikilli fórnfýsi sem þetta fólk leggur óneitanlega á sig. Ég bendi t.d. á frábær afrek fatlaðra íþróttamanna á erlendri grund, afrek sem hafa verið á heimsmælikvarða. Það bendir okkur hins vegar á að það er vandi á höndum í sambandi við liðveislu af því tagi sem hér er farið fram á, einkum fyrir það fjárveitingavald sem svo naumt skammtar til hinna margvíslegustu mála, menningarmála, lista, líknar- og mannúðarmála ýmiss konar og fjölmargra annarra greina sem endurspeglast í fjárlögum okkar hverju sinni. Ég held því að í eðlilegri hrifningarvímu okkar yfir ágætum árangri þurfum við að huga að svo ótal mörgu öðru. Skyndiákvarðanir af þessu tagi eru því vægast sagt vafasamar í ljósi þeirrar afgreiðslu fjárlaga sem nú gilda þar sem niðurskurðarhnífnum er beitt á ótrúlegustu sviðum.
Ég er einn þeirra sem hafa lagt mikla áherslu á það að ungmenna- og íþróttahreyfingin í landinu njóti skipulegs og ríkulegs stuðnings hins opinbera. Ég hef flutt um það till. nokkrum sinnum á Alþingi. Þar koma keppnisíþróttir vissulega við sögu, eins og hv. 1. flm. kom inn á, til örvunar fyrir ýmsa aðra og hvatningar til að ná langt á þessu sviði. En öllu öðru fremur er það þó hin almenna þátttaka í líkamsrækt, ekki síst með tilliti til hollra og góðra tómstunda sem allra flestra, einkum á mótunarárum. Ég tel, eins og hv. 1. flm., fátt Líklegra til forvarna, t.d. í vímuefnamálunum, en slíkt tómstundastarf unglinga. Ég er því talsmaður öflugs stuðnings við ungmenna- og íþróttahreyfinguna í landinu almennt og harma það hve litlar undirtektir tillögugerð mín hér á Alþingi þar að lútandi hefur hlotið.
Ég hlýt hins vegar að vara við öllum skyndiákvörðunum af þessu tagi þótt gleði okkar sé grómlaus og stolt okkar ærið. Margt kallar á og ótal margt er svelt af ágætum málum, m.a. á íþróttasviðinu. Ég nefni enn þá afreksverk fatlaðra í íþróttum sem hafa ekki vakið síðri aðdáun mína en árangur okkar handknattleiksmanna og ættu ekki síður að hljóta verðlaun að makleikum en þessi ágætu afrek. Þau hafa ekki verið verðlaunuð á þann hátt þótt vissulega hafi verið gerð tilraun til þess af fjárveitingavaldinu að styðja allmyndarlega við íþróttastarfsemi fatlaðra miðað við ýmislegt annað. Þá eru fjölmörg mannúðar- og líknarmál sársvelt. Við hljótum því að hika í máli sem þessu. Það geri ég þrátt fyrir ánægju mína yfir ágætri frammistöðu íslenska landsliðsins í handknattleik og þrátt fyrir mikla þökk mína til þeirra ágætu manna sem þar hafa lagt mikla vinnu og fórnfýsi að mörkum.
Ég játa að ég treysti mér ekki til að styðja þessa tillögu í ljósi þess sem ég hef frá greint. Ég veit að ég mæli þar fyrir munn fleiri í mínum flokki, m.a. hv. 5. þm. Austurl. Hjörleifs Guttormssonar. Það má vel nefna þetta úrtölur, það má líka nefna þetta smásálarhátt. En um leið og ég frábið mig slíku með tilliti til þess hvaða tillögur ég hef flutt hér á Alþingi um þennan skipulega stuðning við ungmenna- og íþróttahreyfinguna yfirleitt bendi ég á að meðan smásálarhátturinn er allsráðandi varðandi fjöldamörg mál sem fá enn lakari meðhöndlun Alþingis hlýt ég að stinga við fótum án þess að ég hafi tekið nokkra ákvörðun um andstöðu við þetta mál - það tek ég skýrt fram - mikillar rausnar miðað við ótal margt annað. Liðveislu við þetta og fjölmargt annað er vissulega þörf en skyndiákvörðun af þessu tagi hlýtur að vekja upp fleiri spurningar en ég treysti mér til að svara á þessu stigi.