11.03.1986
Sameinað þing: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3070 í B-deild Alþingistíðinda. (2644)
315. mál, fjárstuðningur við Handknattleikssamband Íslands
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Ég harma það að hv. þm., sem hér tala á móti þessari till., skuli grípa til vandamála þjóðfélagsins á öðrum sviðum til samanburðar, eins og t.d. vanda einstæðra foreldra o.fl. Ég hef sjálfur staðið í því að hjálpa persónulega einstæðum foreldrum og íþróttahreyfingunni líka. Það hefði verið gott ef hv. þm. vildi leita sér upplýsinga um það hvernig t.d. dagheimili og skóladagheimili fóru af stað hér í borginni og hvernig einstæðir foreldrar keyptu húsið í Skerjafirði o.fl. o.fl. fyrir utan það hver veitti ráðleggingar við uppbyggingu á þessum samtökum þegar þau voru á bernskuskeiði. Það er ekkert framlag í þetta mál, sem snýst um það hvort íþróttahreyfingin, sérstaklega þegar íþróttamenn standa sig vel, eigi að fá aðstoð til að halda áfram því starfi sem þarf til að framhald verði á afrekum.
Þegar hvað mest var á mig deilt vegna þess að ég veitti, eins og réttilega kom fram hjá hv. 7. landsk. þm. Kristínu Halldórsdóttur, fjárframlag úr ríkissjóði til handknattleiks lét ég meira af hendi rakna, ég veitti líka fé til ólympíunefndarinnar og lét hækka styrki til íþróttahreyfingarinnar. Hvers vegna? Það var vegna þess að Bjarni, Einar Vilhjálmsson, handboltamenn og fleiri, sem komu frá Ólympíuleikunum í Bandaríkjunum, náðu betri árangri þar en nokkur íþróttamaður hefur nokkurn tíma náð áður í þessum íþróttagreinum. Þeir urðu landi og þjóð til sóma og höfðu meira auglýsingagildi en nokkuð annað sem við höfum hingað til haft fram að færa í íþróttum eða á öðrum sviðum. Hundruð sjónvarpsstöðva voru með þessa drengi í sviðsljósi þann tíma sem keppni stóð yfir vegna þess hve langt þeir náðu.
Á sama tíma voru þessir sömu drengir að hefja harðan undirbúning fyrir heimsmeistarakeppni, sem nú er nýlokið, fjárvana, í stórskuldum, bæði persónulega og sambandið sem slíkt, vegna þátttöku í Ólympíuleikum. Nú hrópa allir húrra fyrir árangri þessara drengja.
Ég get fullvissað hv. þm. um það að þeir hefðu aldrei náð þessum árangri hefði ríkið ekki hlaupið undir bagga og gefið þeim tækifæri til að stunda sínar æfingar. Þeir sem nú undirbúa sig undir Ólympíuleika byrjuðu fyrir átta eða tólf árum. Þeir voru ekki orðnir íþróttamenn á heimsmælikvarða til þess að taka þátt í Ólympíuleikum þegar þjóðirnar byrjuðu að þjálfa þá. En við ætlumst til þess að okkar íþróttamenn fari út í harða heimsmeistarakeppni og Ólympíuleika án undirbúnings, án þátttöku þjóðarinnar þó að þeir komi fram fyrir hönd þjóðarinnar. Og svo skömmum við þá ef þeir ekki standa sig.
Það er a.m.k. átta ára undirbúningur undir hverja Ólympíuleika. Það er ekki að ástæðulausu sem þjóðirnar, sér í lagi stórþjóðirnar, kappkosta að hafa þessi alþjóðamót.
Ég tek undir þessa tillögu, hún er góð. Við skulum átta okkur á því að rekstur Íþróttasambandsins, sem hefur innan sinna vébanda um 80 þús. manns af ekki stærra þjóðfélagi en við erum, kostaði 4- 500 millj. þegar ég síðast vissi. Það er eflaust eitthvað meira núna. En framlag ríkisins, eins og réttilega kom fram hjá hv. 7. landsk. þm., er um 22 millj. Hvaðan heldur hv. þm. að mismunurinn komi? Hann kemur frá einkaaðilum, annaðhvort í beinharðri vinnu eða peningum. Það þarf því ekki að upplýsa það hvernig íþróttahreyfingin er rekin.
Nú er svo komið í fyrsta sinn að íþróttamenn hafa náð þeim árangri að íslensk fyrirtæki, hið opinbera og hálfopinber fyrirtæki, sjá sér hag í því að nota þessa drengi til auglýsinga fyrir það sem talið er heilbrigt í neyslu fyrir börn og unglinga sérstaklega, mjólk og ávaxtasafa o.fl., eins og við sjáum daglega, sem aldrei hefur verið gert hér á landi áður. Auk þess er ýmislegt annað auglýst. Þann árangur hefur þetta starf þeirra borið.
Ég efast ekkert um að þær konur, sem hér sitja fyrir hönd Kvennalistans, hafa góð efni á því að láta mikið framlag af hendi, eins og kom fram hjá hv. 7. landsk. þm. Hún býður upp á það og ég sendi það áfram til handboltamanna að þeir biðji þær um þessi framlög úr því að þær hafa mikil efni á því, enda veit ég ekki til þess að nein þeirra liði skort nema síður sé. Það kom fram hjá hv. 7. landsk. þm. þegar hún bauð upp á að verða rukkuð fyrir hönd Handknattleikssambandsins að þær Kvennalistakonur gætu, eins og hún sagði orðrétt, látið af hendi þó nokkra upphæð. Ég hefði gaman af að vita hver sú upphæð verður en ég skal koma þessu á framfæri.
Hitt er svo annað mál að ég hefði gjarnan viljað sjá hér tillögu ekki bara um framlag til Handknattleikssambandsins. Handknattleikssambandið þarf svo sannarlega á þessum 5 millj. að halda til að undirbúa framhald. Þetta er bara fyrsta skref á langri leið. Þarna er Handknattleikssambandið að ávinna sér rétt til að taka þátt í Ólympíuleikum og þarf áreiðanlega á þessum 5 millj. kr. stuðningi frá ríki eða Alþingi eða einhverjum öðrum að halda. Það nægir ekki, það eru alveg hreinar línur. Þeir sem verða valdir til að undirbúa sig undir þessa keppni þurfa að leggja nótt við dag. Eins og kom fram hjá þeirra viðurkennda þjálfara jafngilda þessi tvö og hálft ár átökum samfellt dag og nótt í fimm mánuði. Reyni hver sem er að setja sig í þau spor.
Skilja hv. Kvennalistakonur hvað ég er að fara? Ég hugsa ekki vegna þess að þær hafa ekki farið í gegnum þann tortúr sem afreksmaður þarf að fara í gegnum til að geta staðið undir nafni. Ég skil vel að þegar forustumaður stærstu landssamtaka íþróttamanna, hv. þm. Ellert B. Schram, miðlar Alþingi af reynslu sinni með till. skuli hún vera misskilin hér. Það undrar mig ekki.
Hitt er annað mál að ég vil endurtaka að ég hefði gjarnan viljað sjá miklu stærri upphæð og að mismunurinn færi þá til ólympíunefndar til undirbúnings annarra afreksmanna m.a. vegna þess að sómi okkar var virkilega í sviðsljósi á Ólympíuleikunum þar sem allir okkar þátttakendur náðu sínum besta árangri og vöktu athygli í öllum greinum. Það var engin grein sundmanna sem ekki kom heim með nýtt Íslandsmet. Bjarni, eins og var minnst á áðan, kom heim með þriðju verðlaun í sinni grein. Handknattleiksmennirnir voru í sviðsljósi um heim allan svo lengi sem Ólympíuleikarnir stóðu yfir.
Ég styð því þessa till. og hefði gjarnan viljað vera meðflutningsmaður að henni og hefði þá haft upphæðina hærri og kannske dreift henni yfir á aðrar íþróttagreinar líka eða, eins og kom fram hér hjá hv. 5. þm. Vestf., held ég, til ólympíunefndarinnar í heild.