11.03.1986
Sameinað þing: 58. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3075 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)

315. mál, fjárstuðningur við Handknattleikssamband Íslands

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Till. sú sem hér um ræðir felur það í sér að veita Handknattleikssambandi Íslands 5 millj. kr. aukafjárveitingu í rauninni. Nú heyri ég að forseti hefur gert það að tillögu sinni við flm. að þessari till. verði ekki vísað til fjvn. Ekki ætla ég mér þá dul að deila við forseta um þingsköpin, en í 15. gr. þingskapa segir, með leyfiforseta:

„Fjárveitinganefnd fjallar um frumvörp til fjárlaga og fjáraukalaga og þingsályktunartillögur sem til hennar kann að vera vísað og fara fram á útgjöld úr ríkissjóði.“

Mér sýnist einsýnt að hér sé um till. þess efnis að ræða að fjvn. fjalli um hana en ekki félmn. Mér sýnist það alveg gefa auga leið og tel raunar einsýnt að svo eigi að vera skv. þingsköpum.