12.03.1986
Efri deild: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3078 í B-deild Alþingistíðinda. (2658)
320. mál, fasteigna- og skipasala
Landbrh. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Frv. það sem hér liggur fyrir á þskj. 591, um fasteigna- og skipasölu, er í meginatriðum efnislega samhljóða frv. er lagt var fram á 106. löggjafarþingi, en var þá ekki útrætt.
Upphaflega samdi prófnefnd löggiltra fasteignasala frv. Til grundvallar samningu frv. lágu ýmsar athuganir á framkvæmd laganna síðustu árin og á ábendingum sem fram höfðu verið settar um endurskoðun. Þá kynntu semjendur sér hliðstæða löggjöf í nágrannalöndum.
Svo sem fyrr segir varð frv. ekki útrætt á 106. löggjafarþingi. Núverandi stjórnarflokkar tóku frv. til endurskoðunar og hefur því verið breytt að nokkru frá fyrri gerð. Var m.a. í því efni stuðst við tillögur og athugasemdir nefndar er félmrh. Alexander Stefánsson skipaði til að kanna fasteignamarkaðinn. Er umsögn nefndarinnar sérstakt fylgiskjal með frv. þessu.
Lög nr. 47/1938, um fasteignasölu, hafa nú verið í gildi í röska fjóra áratugi. Allnokkrar breytingar hafa þó verið gerðar á þeim í tímans rás. Umrædd lög voru fyrstu lögin hér á landi sem settu hömlur við að menn gætu stundað fasteignasölu. Við þá lagasetningu voru dönsk lög um það efni höfð að fyrirmynd. Dönsku lögin hafa nú sætt endurskoðun. Á hinum Norðurlöndunum hafa einnig verið í gildi um alllangan tíma lög sem áskilja löggildingu eða leyfi allsherjarvalds til fasteignasölu og oft til eignamiðlunar almennt, þar á meðal verðbréfasölu, sbr. t.d. finnsk lög frá 1968, sænsk ákvæði frá 1947 og norsk lög frá 1938.
Góð og gild rök eru fyrir því að leyfisbinda þessa umsýslu. Hér er um vandasamt miðlunarstarf að ræða þar sem mikil verðmæti eru í húfi. Almenningshagsmunir bjóða að reynt sé að tryggja að þeir einir fáist við þessi störf sem hafi til þess menntun og starfsþjálfun, þar á meðal að þeir hafi kynnt sér rækilega þau lög og aðrar réttarreglur sem starfið varða.
Í frv. því sem hér liggur fyrir felast m.a. eftirfarandi breytingar:
1. Leyfi til sölu fasteigna og skráningarskyldra skipa skal veitt af dómsmrn. í formi löggildingar skv. ákvæðum frv., sbr. 1. og 5. gr., en eigi af lögreglustjóra svo sem nú er. Er heppilegra að ráðuneytið fjalli um mál þetta en lögreglustjóri og stuðlar það m.a. að samræmdri framkvæmd og að heildaryfirlit sé til á einum stað um alla þá sem löggildingu hafa fengið og starfsstöð þeirra, sbr. 6. gr.
2. Í 1. gr. er hert á kröfum um löggildingu. Gert er ráð fyrir að allir verði að fá löggildingu til að annast kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum. Undantekning er þó gerð varðandi hæstaréttar- og héraðsdómslögmenn ef starfið tengist einstökum fasteignum eða skipum í lögmannsstörfum þeirra.
3. Gert er að almennu skilyrði skv. 4. tölul. 2. gr. að allir standist próf skv. ákvæðum er dómsmrn. setur með reglugerð. Hafa allir jafnan aðgang að því að þreyta próf. Nýmæli er að enginn er lengur undanþeginn prófskyldu nema hæstaréttar- og héraðsdómslögmenn.
4. Sett er að skilyrði fyrir löggildingu að viðkomandi leggi fram tryggingu fyrir greiðslu kostnaðar og tjóns viðskiptamanna.
5. Ákvæðin um próf og prófnefnd í 3. gr. eru orðuð á sveigjanlegri hátt en nú er. Dómsmrh. getur falið öðrum aðilum en prófnefnd að sjá um prófin.
6. Reynslan hefur leitt í ljós að mikil þörf er á að koma á námskeiðum fyrir þá er þreyta vilja próf til löggildingar fyrir fasteigna- og skipasala. Er lagt til í 4. gr. að dómsmrh. sé heimilað að efna til slíkra námskeiða á hæfilegum fresti. Ráðherra getur falið öðrum aðilum að sjá um námskeiðin, svo sem Háskóla Íslands. Sé öðrum ekki falið að sjá um námskeiðin er gert ráð fyrir að prófnefnd eða menn sem hún tilnefnir sjái um námskeiðin og próf. Ekki er gert ráð fyrir að skylda sé að sækja námskeið áður en farið er í próf. Ætlast er til að kostnaður vegna námskeiða og prófa greiðist af þeim er þau sækja.
7. Í 5. gr. er lagt til að löggildingargjald sé háð ákvæðum laga um aukatekjur ríkissjóðs, sbr. lög nr. 79 1975 er komu þeirri breytingu á að því er varðar lög nr. 47/1938. Þá er boðið að þeir er löggildingar leita skuli vinna drengskaparheit að því að rækja starfið af kostgæfni og samviskusemi og hlíta lögum um það.
8. 7. gr. lætur svo um mælt að fasteignasalar hafi réttindi og beri skyldur sem opinberir sýslunarmenn, þar á meðal varðandi brot í starfi, starfsvernd, æruvernd og þagnarskyldu. Er mikilvægt að marka þeim stöðu á þennan hátt.
9. Í 8. gr. segir almennt að fasteigna- og skipasalar skuli í hvívetna haga störfum í samræmi við góðar viðskiptavenjur og þeir skuli gæta þess að aðila séu ekki settir ólögmætir, óeðlilegir eða ósanngjarnir kostir í samningum.
10. Í 9. gr. segir að fasteigna- og skipasala skuli tryggja sér ótvírætt umboð hjá réttum aðila er felur honum umsýslu varðandi fasteign eða skip. Ætti það að draga úr ágreiningi sem stundum rís um það hvort eign hafi verið falin tilteknum manni til sölumeðferðar.
11. Í 10. og 11. gr. eru miklu rækilegri ákvæði en nú er um þær upplýsingar sem fasteigna- og skipasali á að afla svo og grg. sem honum ber að semja svo að sem gleggstur grundvöllur fáist til að viðkomendur geti gert sér grein fyrir verði eignar. Gert er ráð fyrir því í 11. gr., 2. málsgr., að ráðuneytið geti mælt svo fyrir að stöðluð eyðublöð verði notuð að nokkru eða öllu undir þessar upplýsingar. Skv. 15. gr. getur dómsmrh. sett nánari reglur um upplýsingaöflun og samningu grg.
12. Í 12. gr. er lagt til að fasteignasali annist sjálfur samningu skjala í ríkari mæli en nú er. Að baki býr m.a. það viðhorf að fasteignasali beri persónulega ábyrgð á störfum við fasteignasölu og verði henni ekki skipað með þeim hætti að félag með takmarkaðri ábyrgð reki fasteignasölu.
13. Ákvæði 13. og 14, gr. eru að mestu í samræmi við gildandi lög.
14. Í 15. gr. segir að dómsmrh. geti sett nánari ákvæði í reglugerð um stöðu, störf og starfshætti fasteignasala, sbr. einnig ákvæði 4. tölul. 1. málsgr. 2. gr., 2. málsgr. 3. gr. og 2. málsgr. 11. gr.
15. Ákvæði 16. og 17. gr. eru nýmæli sem varða missi skilyrða til að stunda fasteignasölu og er við samningu þess m.a. höfð í huga tilhögun sú sem lögmælt var í þessu efni með 68. gr. og 68. gr. a. almennra hegningarlaga, sbr. 6. og 7. gr. laga nr. 31/1961.
16. Í niðurlagsákvæði 17. gr. er eftirlit með starfsemi fasteigna- og skipasala lagt í hendur dómsmrn.
17. Í 18. gr. er gert ráð fyrir því að fasteigna- og skipasölum sé heimilt að hafa með sér félag. Það er þó ekki nauðsynlegt að lögbjóða slíka heimild, sbr. ákvæði stjórnarskrár um félagafrelsi, en með þessu ákvæði er gefið til kynna að æskilegt sé að þeir hafi með sér félag, enda hefur slíkt félag þegar verið stofnað. Stjórn félagsins kemur fram út á við fyrir hönd félagsins.
18. Í 20. gr. er lagt til að fasteignasalar fái einkarétt á að nefna sig fasteignasala eða skipasala að því viðlögðu að það varði við refsingu fyrir aðra að nefna sig þessum nöfnum. Þetta er í samræmi við það sem tíðkanlegt er hjá öðrum starfsstéttum.
19. Gert er ráð fyrir því, ef frv. verður samþykkt, að stofnað verði til námskeiðs, sbr. 4. gr., eftir gildistöku laganna.
Ég hef hér gert grein fyrir helstu atriðum þeirra breytinga sem þetta frv. felur í sér frá núgildandi lögum. Ég vænti þess að hv. deildarmenn séu mér sammála um að hér sé um að ræða mjög þarfar breytingar, sem æskilegt er að nái fram að ganga, og hagi meðferð málsins í samræmi við það.
Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.