30.10.1985
Neðri deild: 11. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

20. mál, almannatryggingar

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ef konur á Íslandi gætu almennt lifað af dagvinnulaunum sínum mannsæmandi lífi þyrfti ekki að flytja svona frv., en vegna þess að þær geta það ekki og sá hópur sem hér um ræðir stendur verulega höllum fæti verður að horfast í augu við þann veruleika sem við blasir. Ég tel þetta hið sjálfsagðasta réttlætis- og jöfnuðarmál og ætla ekki að orðlengja um það frekar, en vísa til ágætrar framsögu hv. flm. Ég vil í stuttu máli lýsa yfir eindregnum stuðningi við þetta ágæta mál.