12.03.1986
Neðri deild: 63. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3099 í B-deild Alþingistíðinda. (2672)
54. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. 2. minni hl. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég hef talað áður um þetta frv. við 2. umr., frekar í tvígang en einu sinni, og þarf því ekki að bæta ýkja miklu við, enda hefur ekki margt breyst frá því að við ræddum þetta frv. við 2. umr., illu heilli vil ég segja, því að þar lágu þó fyrir brtt. sem hefðu gert það skömminni skár úr garði en það er, en þær hlutu því miður flestar dapurleg örlög og við sitjum uppi með frv. eftir 2. umr. með þeim hinum sömu ágöllum og fyrir voru í því og að samþykktum brtt. meiri hl. sem margar hverjar voru síst til bóta að mínu mati. Brtt. minni hl. voru að engu hafðar.
Ég vil taka undir það, sem hér hefur þegar verið sagt og jafnvel af fleiri en einum hv. ræðumönnum, að hér er auðvitað stórmál á ferðinni og þýðingarmikið mál sem snertir alla landsmenn. Það snertir þá á þann hátt að það á í sjálfu sér ekki að þurfa að skipa mönnum í pólitíska flokka hvernig þeir taka afstöðu til þessa máls, enda sýnist mér liggja fyrir að það sé allt annað sem ráði meiru um hvernig menn taka afstöðu hér en það í hvaða stjórnmálaflokk þeir hafa skipað sér, sem eðlilegt má kalla. Þess vegna og einmitt sérstaklega þess vegna er það ámælisvert og ber að harma að hv. meiri hl. skuli ekki hafa lagt meira á sig en raun ber vitni til að reyna að leita samstöðu um þetta mál. Þetta er eðli málsins samkvæmt einn sá málaflokkur sem mönnum er skylt hér á hv. Alþingi að leggja mikið á sig til að ná samstöðu um, rétt eins og þegar menn afgreiða stjórnarskrárbreytingar eða breyta kosningalögum eða öðru slíku sem snertir grundvallarþætti stjórnskipunar í landinu. Þá ber hv. Alþingi að leggja mikið á sig til að reyna að ná sem allra víðtækastri samstöðu. Hér hefur ekki tekist til sem skyldi í þeim efnum.
Ég gerði grein fyrir þeirri afstöðu minni, bæði í nál. og í framsögu við 2. umr., að ég teldi margt vera til bóta í þessu frv. og að ýmsum brtt. samþykktum, sem ég flutti sérstaklega, teldi ég réttlætanlegt að samþykkja frv. þó að ég lýsti engu að síður þeirri afstöðu minni að óhjákvæmilegt væri að sveitarstjórnarlög kæmu aftur og það mjög fljótlega til endurskoðunar þrátt fyrir þetta frv. Nú hefur sú breyting orðið á, sem fyrir liggur, að brtt. mínar og annarra aðila stjórnarandstöðunnar voru felldar og önnur þau sjónarmið, mismunandi sjónarmið, sem einnig hafa verið uppi, einnig af hálfu ákveðinna stjórnarliða, hafa að engu verið höfð. Því er það nú mín afstaða að ég mun styðja brtt. hv. þm. Karvels Pálmasonar, 3. þm. Vestf., o.fl. Ég vil í því sambandi jafnframt minna á að ég hafði þegar í félmn. og einnig við 2. umr. um málið lýst þeirri afstöðu minni og lagt fram það tilboð af minni hálfu og míns flokks að við skyldum stuðla að þeim lágmarksbreytingum á lögunum, sem nauðsynlegar væru og fullt samkomulag var um og er um af hálfu allra stjórnmálaflokka hér á Alþingi, að breyta kosningalögum og kjörgengi og ákvæðum um kjördag þannig að í vor mætti kjósa samkvæmt nýjum lögum og að við skyldum stuðla að því að þær breytingar gengju hér í gegnum þingið sem allra fyrst, enda ekki vansalaust hversu seint þessi ákvæði eru á ferðinni með tilliti til sveitarstjórnarkosninga í lok maímánaðar. Því er brtt. hv. þm. Karvels Pálmasonar alveg í samræmi við þá afstöðu mína og þá skoðun, sem ég hafði reyndar þegar fyrir áramót og lét koma fram í félmn., að greinilegt væri að ekki liti út fyrir að það næðist víðtæk samstaða um þær miklu breytingar sem menn telja að gera þyrfti á sveitarstjórnarlöggjöfinni. Því væri eðlilegra að fresta meginhluta þess verks og gefa sér meiri tíma til að reyna að ná þar samstöðu, en afgreiða þess í stað sem fyrst þær breytingar á kosningakafla frv. sem allir eru sammála um að gera þurfi. Ég hefði talið farsælt eftir á að hyggja ef fulltrúar meiri hl. hefðu þá þegar tekið slíku tilboði og áttað sig á því að það var farsælasta lausnin á málinu eins og stendur. En svo var ekki og það ber að harma. Síðan bætist það við, sem nú hefur áþreifanlega komið fram, bæði við 2. umr. og eins nú þegar hv. 1. þm. Norðurl. v. talaði, að verulega skiptar skoðanir eru uppi um ágæti þessa frv. í stjórnarliðinu. Það þykir mér enn frekar benda til þess að það sé ekki rétt og ekki tímabært að afgreiða þetta frv. hér á atkvæðum eins og allt lítur þó út fyrir.
En skyldi nú fara svo að brtt. hv. þm. Karvels Pálmasonar o.fl. verði ekki samþykkt hér og meiri hl. haldi áfram að keyra málið hér í gegn á atkvæðum flyt ég engu að síður aftur brtt. um nýja grein sem verði 98. gr. og varðar kosningu fulltrúa í stjórnir byggðasamlaga, héraðsnefnda og ákvörðun um fjölda stjórnarmanna, einnig kosningar fulltrúa á ársfundi landshlutasamtaka. Ég get með engu móti, herra forseti, sætt mig við það, ef frv. með brtt. meiri hl. gengur í gegn, að ekki verði reynt að laga þann stóra ágalla, sem yrði á því óbreyttu, að ekkert verði kveðið á um hvernig standa skuli að kosningum til héraðsnefnda og byggðasamlaga og einnig hvernig velja skuli fulltrúa á ársfundi landshlutasamtaka. Það er að mínu viti ótvíræð afturför frá þeim skýru ákvæðum sem eru um t.d. kosningu sýslunefnda. Hvort sem menn eru þeim sammála í sjálfu sér eður ei eru þar skýr ákvæði. Að hverfa með öllu frá því að segja eitt einasta orð í lögum um það hvernig velja skuli stjórnir slíkra samtaka er að mínu viti slík afturför að við það er ekki unandi. Ákveðin leiðbeiningarregla sem tryggir lýðræðislega kosningu og eðlilega aðild meiri hluta og minni hluta í slíkum stofnunum er alveg óhjákvæmileg að mínu mati. Ég get ekki með nokkru móti stutt þessar breytingar ef ekki næst fram einhver leiðrétting að þessu leyti. Því hef ég endurflutt brtt. þar að lútandi að við frv. bætist ný grein sem verði 98. gr. og fjalli um þetta tiltekna atriði.
Því er við að bæta að það er mikið umhugsunarefni ef menn treysta sér til að afgreiða lög um jafnþýðingarmikið og afdrifaríkt mál og skipan sveitarstjórnarmála og allt samstarf sveitarfélaga án þess að binda á nokkurn hátt í lögum hvernig því samstarfi skuli háttað og tryggja að ákveðnar lýðræðislegar leikreglur séu þar í heiðri hafðar. Það kemur manni mjög á óvart, þegar borin eru saman frv. eins og það nú liggur fyrir með brtt. meiri hl. annars vegar og hins vegar gildandi lóg um áratugi um sveitarstjórnir í landinu, sú afstöðubreyting sem þetta virðist boða hjá löggjafanum, að það sé ekki lengur nein ástæða til að hafa í lögum ákvæði um þessi efni. Kunnugir menn munu átta sig á því að í gildandi lögum um sveitarstjórnir eru og hafa lengi verið ítarleg ákvæði um þetta atriði, t.d. hvað sýslunefndirnar varðar, upp á margar blaðsíður. Nú treysta menn sér til að kippa þessu öllu út á einu bretti án þess að nokkuð komi í staðinn. Það er hreystilega gert.
Herra forseti. Ég tel reyndar að það hafi þegar legið fyrir þegar fulltrúar meiri hl. höfðu tekið þá ákvörðun að kippa IX. kafla frv. út eins og hann lagði sig á einu bretti að endurskoða þyrfti öll vinnubrögð í sambandi við setningu þessara laga vegna þess að þar með var sú vinna, sem endurskoðunarnefndin og aðrir sem að undirbúningi málsins höfðu komið, í raun og veru ómark vegna þess að búið var þar með að taka ákvörðun um slíka grundvallarbreytingu á uppbyggingu sveitarstjórnarlaganna að það var nauðsynlegt að horfa með nýjum hætti á spilið. Þetta var ekki gert. Þess í stað ákváðu meirihlutaaðilarnir að drífa frv. áfram með þeirri meginbreytingu að kippa þessu öllu út án þess að setja þar nokkuð í staðinn, enda hægara sagt en gert að koma því saman á nokkrum dögum. Þarna lá fyrir að mínu mati þegar í janúarmánuði, þegar fulltrúar meiri hl. boðuðu þessa niðurstöðu í félmn., sú staða að eðlilegast hefði verið að leggja frv. til hliðar og gera einungis á því þær breytingar sem ég hef margfjallað um og varða kosningaákvæðin.
Auðvitað er það svo, herra forseti, að engu að síður eru eftir ákveðnar lagfæringar í þessu frv. sem tímabærar má telja og fyllilega það, en þær skipta að mínu mati ekki lengur því máli að það réttlæti að vinna að þessu með fljótaskrift og ég get ekki séð að það skaði á nokkurn hátt sveitarfélögin í landinu þó að þessi lagasetning bíði í eitt ár enn og menn taki sér eðlilegan tíma til að ræða málin og leita samkomulags á næsta löggjafarþingi. Því er það mín afstaða að styðja brtt. hv. þm. Karvels Pálmasonar o.fl. Ég vona og treysti því að menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir fella þá till. og ákveða að halda áfram með málið í þeirri blindgötu hvar það er nú sjáanlega statt.