17.03.1986
Neðri deild: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3127 í B-deild Alþingistíðinda. (2691)

Um þingsköp

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér er á dagskránni 3. mál, lögverndun á starfsheiti kennara og skólastjóra, stjfrv. Þetta frv. var lagt fyrir hv. þingdeild 20. febr. s.l. Það er að verða mánuður liðinn frá því þetta frv. var lagt fyrir og hefur verið á dagskránni síðan, en ekki enn þá verið mælt fyrir málinu. Ég gerði fyrir viku eða hálfum mánuði athugasemd um þingsköp og innti eftir því hvað ylli. Þá var hæstv. menntmrh. fjarverandi eins og flestir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands. Nú hefur raknað úr því. Nú eru ráðherrarnir komnir heim flestir hverjir og hæstv. menntmrh. viðstaddur. Ég hef síst á móti því að rætt sé um sveitarstjórnarfrv., 1. mál á dagskrá þessa fundar. Það er búið að ræða það mikið og ítarlega og verða sjálfsagt langar umræður enn. En ég inni, herra forseti, eftir því: Er enginn vilji fyrir því af hálfu ríkisstj. að mæla fyrir þessu stjfrv., 3. máli á dagskrá?