17.03.1986
Neðri deild: 64. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3132 í B-deild Alþingistíðinda. (2696)
54. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. meiri hl. (Friðrik Sophusson):
Hæstv. forseti. Ég þarf ekki að flytja langa ræðu um þetta mál, ég hef þegar talað tvívegis í málinu, en mig langar að vekja athygli á nokkrum atriðum við 3. umr. málsins.
Í fyrsta lagi hefur verið lögð fram brtt. frá hv. 3. þm. Vestf. og nokkrum öðrum hv. þm. Þessi brtt. gerir ráð fyrir að aðeins tvær greinar frv. haldi sér. Það skal tekið fram að hugmyndir sem koma fram í brtt. hv. þm. Karvels Pálmasonar um að 13. gr. frv. og sú 19. haldi sér, eins og kemur fram á þskj. 607, voru talsvert ræddar í nefndinni. Ég tel að ég geti sagt að það sé allsherjarsamkomulag um það, a.m.k. á meðal nefndarmanna og sjálfsagt meðal allra þingflokka, að orðalag greinanna verði eins og þar er gert ráð fyrir og að kosið verði í vor með þeim hætti sem við höfum lagt til. Þessar tvær greinar fjalla sem sagt annars vegar um kosningarréttinn, kosningarréttarskilyrðin, aðallega þó það að kosningarrétturinn er nú miðaður við 18 ár en var 20 áður, eins eru þar gerðar örfáar lagfæringar sem allir eru sammála um, og hins vegar um kjördaginn, að það sé einn aðalkjördagur, en það sé heimilt fyrir smærri sveitarfélögin, einkum þau strjálbyggðu, að fá að kjósa síðar. Það er gert ráð fyrir því að svo geti verið í þessum till. meiri hl. nefndarinnar vegna þess að í fámennari sveitahreppum stendur sauðburður yfir einmitt þegar gert er ráð fyrir að aðalkjördagur fari fram.
Meiri hl. nefndarinnar var hins vegar á þeirri skoðun að eðlilegt væri að reyna að afgreiða frv. í heild. Það er auðvitað fyrst og fremst vegna þess að það hefur verið mikið unnið í þessu máli. Það hafa tvær nefndir unnið að málinu. Málið hefur verið í vinnslu hjá ráðuneytinu. Það var lagt fram á síðasta þingi og það hefur verið rætt mjög mikið í nefndarstörfum á yfirstandandi þingi.
Þessu til viðbótar vil ég segja að Samband ísl. sveitarfélaga hefur sérstaklega skorað á Alþingi að afgreiða málið, nú síðast á fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga sem haldinn var 27. og 28. febrúar s.l. Þar var skorað á Alþingi að afgreiða þetta frv. sem allra fyrst.
Ég vil enn fremur benda á að sá kafli sem kannske hefur minnst verið ræddur í þessari umræðu og 2. umr. er fjármálakaflinn, en í honum eru mörg mikilvæg nýmæli og hefur honum jafnframt verið breytt í meðförum þingsins. Við lítum svo á í meiri hl. hv. félmn. að samþykkt þessa frv. sé aðeins fyrsta skrefið og að lögin opni fyrir frekara samstarf án lögþvingunar og sé forsenda fyrir því að hægt sé að færa til verkefni og tekjustofna frá ríki til sveitarfélaga og samtaka þeirra. Við teljum að að því starfi þurfi að vinna ósleitilega á næstunni.
Það er af þessum ástæðum, herra forseti, sem meiri hl. nefndarinnar taldi ástæðu til að láta reyna á hvort ekki næðist samkomulag um eða a.m.k. meiri hluti á þingi fyrir því að ná þessu frv. fram.
Á þskj. 615 flytur hv. 3. þm. Reykv. ásamt nokkrum öðrum þm. till. þess efnis að fjöldi sveitarstjórnarmanna sé bundinn við viss skilyrði í vissum tilvikum. Ég vil eingöngu benda á að í frv. eins og það lítur nú út er ákvæði nákvæmlega sama efnis og er í núgildandi lögum. Þetta er um fjölda sveitarstjórnarmanna. Mér finnst eðlilegt að lögin nefni til ákveðinn ramma, en innan þess ramma eigi sveitarstjórnirnar sjálfar að hafa ákvörðunarrétt. Þess vegna lýsi ég yfir algerri andstöðu við þessa brtt. hv. 3. þm. Reykv.
Á þskj. 605 hefur hv. 1. þm. Norðurl. v. flutt till. sem fjallar um nokkur atriði frv. Í fyrsta lagi, eins og kom fram í hans máli, er gert ráð fyrir því að felld séu úr frv. hugtök eins og hugtakið „byggð“, þetta verðlaunahugtak Sambands sveitarstjórna, og „byggðasamlög“, en í staðinn komi önnur hugtök sem tillögumaður telur að séu betur í samræmi við íslenskt mál. Ég skal ekki leggja dóm á þetta. Ég bendi eingöngu á að þetta eru hugtök sem sveitarstjórnarmenn, sem að þessu máli hafa komið, hafa valið sjálfir. Ég bendi enn fremur á að ég hygg að hugtakið „byggðasamlag“ verði ekki notað sem hugtak um fyrirtæki heldur komi fyrirtæki, sem sveitarstjórnir reka sameiginlega, til með að heita öðrum nöfnum en svo að hugtakinu „byggðasamlag“ verði bætt aftan við verkefni sem um er að ræða. Þannig á ég ekki von á því að ef hundahreinsun t.d. lenti í byggðasamlagi héti byggðasamlag hv. þm. Hundahreinsunarbyggðasamlag Austur-Húnvetninga. Mér þætti það ólíklegt. Ég held að það sé ekki ástæða til að óttast það. (Gripið fram í.) Ja, hér í Reykjavík sér Alþb. um hundahreinsun fyrir okkur. Það hélt ég að hv. þm. vissi. Ég veit að þeir kannast við það sem sækja aðalfundi þess bandalags. En það er önnur saga. (Gripið fram í.) Nei, menn verða að byrja á sjálfum sér, enda nær þetta ekki yfir aðrar dýrategundir en þær sem eru í flokknum.
En í öðru lagi, og það er eitt af efnisatriðum till. hv. 1. þm. Norðurl. v., er gert ráð fyrir að nýkjörnar sveitarstjórnir taki við strax að kjörfundi loknum, þegar búið er að greiða atkvæði. Við gerum ráð fyrir því í meiri hl. nefndarinnar að þetta verði ekki fyrr en eftir 15 daga. Ástæðan er sú að það er kærufrestur í lögunum og þess vegna ekki eðlilegt að ný sveitarstjórn taki við fyrr en að loknum kærufresti, enda er gert ráð fyrir því í frv. eins og það er nú að vald gömlu sveitarstjórnarinnar sé takmarkað verulega. En þetta er bitamunur en ekki fjár. Aðaltillaga hv. 1. þm. Norðurl. v., Pálma Jónssonar, er sú að sýslunefndir haldi sér með nokkrum breytingum frá því sem nú segir í lögum, og í 5. brtt. er ítarlega gerð grein fyrir því á hvern veg sýslunefndir skuli starfa.
Ég efast um það að víðtækt samkomulag sé í sölum Alþingis um þessar tillögur og bendi m.a.s. á að hv. síðasti ræðumaður efaðist um að 102. gr. í 5. brtt. hv. 1. þm. Norðurl. v. ætti rétt á sér, en hún fjallar um tekjustofnana, svo ég nefni eitt dæmi sem komið hefur fram í þessum umræðum. Hygg ég þó að hv. síðasti ræðumaður standi heldur með sýslunefndum en gegn og því fyrirkomulagi að þær fái að halda sér. Ég tel að meiri hl. hv. félmn. hafi komið verulega til móts við sjónarmið þeirra sem ekki vilja kasta sýslunefndum fyrir róða að sinni. Við höfum fellt á brott IX. kafla upphaflega frv., þar sem gerð var grein fyrir verulegri breytingu frá því sem nú er, og við gerum nú till. í 3. umr. til breytinga á 6. gr. frv. Ég held að það sé ekkert leyndarmál að segja frá því að þessi till. var borin undir einn sýslumanna hér á landi, sem hvað mesta reynslu hefur af sveitarstjórnarmálum, og hann hefur að mínu mati sætt sig við það og talið að komið sé verulega til móts við þau sjónarmið sem hann kynnti í hv. nefnd á sínum tíma.
Hugmyndin að baki brtt. meiri hl. eru þessar:
Í fyrsta lagi: Að verkefni núverandi sýslunefnda falli til sveitarfélaga en sýslunefndir séu aflagðar. Sýslunefndir voru settar á laggirnar 1872 og ítrekað hafa komið fram óskir um að þær yrðu af lagðar.
Í öðru lagi: Sveitarfélögum er skylt að mynda héraðsnefndir um þau verkefni sem sýslunefndum eru nú falin með lögum og birtur hefur verið listi yfir a.m.k. flest þau atriði sem snerta sýslunefndir með meirihlutanefndaráliti sem lagt var fram til 2. umr. málsins.
Í þriðja lagi: Sveitarfélög, sem aðild eiga að héraðsnefndum, geta falið héraðsnefndum önnur verkefni en þau sem lögbundin eru ef um það næst full samstaða.
Í fjórða lagi: Kaupstaðir geta átt aðild að héraðsnefndum, en eins og allir vita eiga kaupstaðir ekki aðild að sýslunefndum, og er hér verið að jafna réttarstöðu sveitarfélaganna í landinu.
Í fimmta lagi: Ekki er nauðsynlegt að héraðsnefndirnar samsvari í öllum tilvikum sýslufélögum, og hefur þar verið vísað m.a. til landfræðilegra ástæðna.
Í sjötta lagi: Um starfshætti héraðsnefndanna er vísað til IX. kafla frv. eins og það er eftir 2. umr. Í þeim kafla er því lýst sem gera þarf þegar sveitarfélög efna til samstarfs annaðhvort af eigin hvötum eða á grundvelli laga um lausn einstakra verkefna sem sveitarfélögum eru falin.
Í sjöunda lagi: Til þess að koma á hinni nýju skipan er gert ráð fyrir að kosnar verði sýslunefndir í vor og skulu oddvitar þeirra, þ.e. sýslumennirnir, hafa forgöngu um breytingarnar í samvinnu við félmrn.
Í áttunda lagi: Þessi nýja skipan eykur varla hættuna á því að einstök sveitarfélög leiti úr samstarfi sem ekki er lögmælt, eins og fram hefur verið haldið í þessum umræðum. Sú hætta er nefnilega alveg eins fyrir hendi í dag - og jafnvel fremur í dag heldur en eftir samþykkt þessa frv. - þegar sú þróun er skoðuð að stærri sveitarfélög hafa sótt um og fengið kaupstaðarréttindi í stórum stíl á undanförnum árum.
Í níunda lagi: Vilji heimamanna ræður, réttarstaða sveitarfélaganna er jöfnuð, eins og ég sagði áðan, og ýtt er undir samstarf með nýju lagi. Með því að geyma afgreiðslu frv. frestast málið í nokkur ár, að minni hyggju, vegna þess m.a. að sýslunefndir verða þá kjörnar til fjögurra ára og það er ákaflega erfitt að ætla sér að breyta þessu kerfi á miðju kjörtímabili. Okkur er ljóst að fyrir árslok 1987 kann að þurfa að breyta lögunum til að liðka fyrir hinni breyttu skipan og það er auðvitað eðlilegt að félmrh. gangist fyrir því og fylgist vel með hvort ástæða sé til þess að liðka fyrir því að hið breytta kerfi geti komist á.
Það má vel vera að heimurinn farist ekki þótt þetta frv. strandi hér í þinginu, eins og ég efast ekki um að sumir vilji, og það er auðvelt á einum eða tveimur dögum að renna í gegnum þingið ákvæðum um kjördaga og kosningarréttarskilyrðin eins og gerð hefur verið tillaga um í brtt. á þskj. 607. Þetta segi ég vegna þess að ég veit að það er víðtæk samstaða um þessi tvö atriði. Ég vek hins vegar athygli á því að andstæðingar þessa frv. eru klofnir í afstöðu sinni. Annar hópurinn vill viðhalda sýslunefndum en er á móti öðru millistjórnarstigi. Hinn hópurinn vill sýslunefndirnar feigar en kýs lögbundið samstarf með öðrum hætti. Í raun og veru eiga þessir tveir hópar lítið annað sameiginlegt en að vilja fresta málinu um hríð, eins og tillaga hv. 3. þm. Vestt. gerir ráð fyrir, enda hafa hóparnir og þm. sem á móti frv. eru sameinast um stuðning við þá tillögu.
Ég tel hins vegar, herra forseti, að enn sé tími, þótt naumur sé, til þess að afgreiða þetta mál og vænti þess að okkur auðnist hér í dag að klára þessa umræðu og koma málinu upp til Ed