31.10.1985
Sameinað þing: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í B-deild Alþingistíðinda. (270)
Um þingsköp
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs um þingsköp að gefnu tilefni. Til að byrja með í máli mínu vil ég, með leyfi hæstv. forseta, vitna í hans orð í lok síðasta þings. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi hefur ekki farið varhluta af gagnrýni á vinnubrögð á þessu þingi. Réttmætt aðhald almennings við Alþingi er af hinu góða og ekki til að amast við. Margt í gagnrýninni á við rök að styðjast, annað er byggt á misskilningi. En mest er um vert að Alþingi leitist ávallt við að bæta vinnubrögð sín og halda þeim svo að það megi sem best gegna sínu mikilvæga hlutverki.“
Enn fremur segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Á þessu þingi sem nú er að ljúka hefur meginvandinn verið fólginn í því að af 107 stjfrv. eru 31 lögð fram eftir 10. apríl.“ En því nefni ég 10. apríl að eftir þann tíma hefði ekki verið heimilt skv. hinum nýju þingsköpum, sem Alþingi hefur nú sett sér, að taka til meðferðar ný þingmál nema með afbrigðum.
Herra forseti. Eins og ég sagði í upphafi máls míns þá kveð ég hér hljóðs af gefnu tilefni. Þrjár vikur eru nú liðnar af þessu þingi og af þeim tíma hefur Ed. nánast setið aðgerðarlaus. Stjórnarandstöðu var af núv. fjmrh. brugðið um úrræðaleysi, en ég vil benda á að ef ekki hefði komið til málflutningur stjórnarandstöðunnar hefði Nd. og Sþ. líka setið nánast aðgerðarlaus þennan sama tíma. Enn þá hafa ekki verið kjörnir embættismenn allra nefnda þingsins, þó að þrjár vikur séu liðnar af starfstíma þess, og engar skýringar á því að finna. Mér sýnist því allt stefna í þau vinnubrögð sem sumir menn líta hér orðið á sem eðlileg. Því er ástæða til að áminna ráðherra og þingheim um að taka sér tak.
Ein aðalástæðan fyrir þeim álitshnekki sem Alþingi hefur orðið fyrir með þjóðinni tel ég vera þá að þm. hafa ekki gætt virðingar þingsins sem skyldi. Það dylst ekki almenningi, umbjóðendum okkar, að þm. kyngja því æ ofan í æ að þingið sé notað af stjórnvöldum sem afgreiðslustofnun. Almenningur dregur þær ályktanir af þessum geðlurðuhætti þm. að þeir sitji fyrst og fremst á þin i launanna vegna en ekki kjósenda sinna vegna.
Ég fullyrði að þeir þm. sem hér sitja og eru í stjórn eða hafa verið í stjórn, eru ráðherrar eða hafa verið ráðherrar, eru sekir um að hafa beitt þingið þeim bolabrögðum sem duga til að þröngva málum hér í gegn, án tillits til þess tíma sem nauðsynlegur er til að fjalla um jafnafdrifarík mál og lög eru.
Í fylgiskjali með stefnuræðu forsrh. er listi 114 frumvarpa og fjögurra þingsályktunartillagna, þ.e. 118 þingmála, sem flytja á á þessu þingi. Og ég vek athygli á að þrjár vikur eru liðnar af þessu líklega u.þ.b. 24-25 vikna þingi sem við eigum í vændum. Þ.e. 1/8 af vinnutíma okkar er búinn og farinn til einskis. Enn fremur kom fram í fylgiskjali með stefnuræðu forsrh. að ekki væru öll kurl komin til grafar, þannig að við mættum eiga von á fleiri þingmálum en þeim sem þar voru tilgreind.
Ég tel að ríkisstj. hafi haft á tveimur og hálfu ári nægan tíma til að undirbúa þessi mál og ráðherrar hafi enga afsökun fyrir því að vera ekki búnir að leggja þessi mál fram nú þegar. Eða vinna þeir og ráðuneyti þeirra bara á meðan þing stendur?
Ég skora á ríkisstj. að taka sér tak og leggja þau mál fram strax sem mönnum er alvara um að hljóti afgreiðslu á þessu þingi. Ég skora á samþingmenn mína að taka sér tak og láta ekki eina ferðina enn vaða með skóhlífunum ofan í kokið á sér og hafna þeim vinnubrögðum sem beitt var hér á s.l. vori og útlit er fyrir að séu að verða að sjálfsagðri hefð hér á þessu þingi. Ég skora á samþingmenn mína að vera samtaka að neita að afgreiða mál hér öðruvísi en að þau fái sanngjarnan tíma til umfjöllunar. Ég lýsi því yfir hér sjálfur að ég mun ekki taka þátt í slíkum loddaraleik enn eina ferðina.
Ég vil líka fara fram á það við hæstv. forseta að hann áminni samþingmenn mína opinberlega um að þeir voru kosnir til löggjafarstarfa fyrst og fremst, en ekki til setu í stjórnum, nefndum og ráðum framkvæmdavaldsins. Ég tel þetta nauðsynlegt vegna þess að það er greinilegt að ýmsir þm. láta störf sín í Framkvæmdastofnun, bankaráðum og stjórnarnefndum ríkisstofnana ganga fyrir störfum í þingnefndum og því ekki vanþörf á að áminna þessa menn um að umboð kjósenda þeirra hér á þingi gengur fyrir umboðsstörfum þeirra á vegum Alþingis hjá framkvæmdavaldinu.
Ég vil leyfa mér hér, með leyfi hæstv. forseta, að endurtaka þau orð sem hann viðhafði hér við þingslit í vor: „Mest er um vert að Alþingi leitist ávallt við að bæta vinnubrögð sín og halda þeim svo að það megi sem best gegna sínu mikilvæga hlutverki.“