17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3144 í B-deild Alþingistíðinda. (2723)

231. mál, mötuneyti Pósts og síma í Thorvaldsensstræti

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins benda á í þessu sambandi að ég sé ekki hvers vegna menn þurfa að einblína einmitt á þetta hús. Ég sé ekki betur en að þegar Borgarleikhúsið tekur til starfa losni sýningarsalur í miðbænum í næsta nágrenni við þetta hús sem hlýtur að koma til álita að nota einmitt á þann hátt sem hér hefur verið lýst. Ég held að menn hljóti að þurfa að verða aðeins víðsýnni en einblína á þetta eina hús þar sem er mötuneyti starfsmanna Pósts og síma. Það eru vissulega ýmsir fleiri möguleikar í þessu máli til að leysa þarfir þeirra áhugalistamanna sem hér er um að ræða.