17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3149 í B-deild Alþingistíðinda. (2731)

291. mál, hvalarannsóknir

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Í byrjun ársins 1983 samþykkti Alþingi Íslendinga að mótmæla ekki hvalveiðibanninu sem Alþjóðahvalveiðiráðið hafði samþykkt og gilda skal frá 1986 til 1990. Ástæður fyrir þeirri samþykkt eru flestum kunnar, en þær eru fyrst og fremst uggur manna um ofveiði hvalastofnanna sem ætlunin er að rannsaka ítarlega á næstu árum. Alþingi lýsti einnig yfir vilja sínum til að unnið skuli að rannsóknum á hvalastofnunum á þessu tímabili og er það vel. En áætlun um verulegt hvaladráp hefur valdið ýmsum áhyggjum, þar sem í ráði er að veiða árlega árin 1986, 1987, 1988 og 1989 80 langreyðar, 40 sandreyðar og 80 hrefnur eða þriðjung þess sem veitt hefur verið að meðaltali af langreyði og hrefnu og um helming þess sem veitt hefur verið af sandreyði. Hvalur hf. annast hinar vísindalegu veiðar undir yfirstjórn Hafrannsóknastofnunar og sölutekjur eiga að fjármagna hinar vísindalegu rannsóknir. Allt kann þetta að vera gagnlegt, en full ástæða er til að Alþingi og almenningur eigi greiðan aðgang að upplýsingum um framkvæmd.

Mér er ekki kunnugt um hvort allir alþm. hafa fengið áætlunina, en grun hef ég um að hún liggi ekki á lausu fyrir almenning. Vitað er að gildistöku samningsins frá 14. maí 1985 var frestað til 1. janúar 1986. Jafnframt var þá tilkynnt um að rannsóknaráætlunin yrði endurskoðuð, trúlega vegna gagnrýni m.a. vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins. Um 100 aðilum víðs vegar um heim mun hafa verið skrifað og þeim boðið að láta í ljós álit á áætluninni. Ekki hefur þó heyrst um neina endurskoðun. Þess vegna hef ég leyft mér að bera fram fsp. á þskj: 537 sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

1. „Hvað líður endurskoðun áætlunar um hvalarannsóknir sem boðuð var þegar gildistöku samnings við Hval hf. um hvalveiðar í vísindaskyni var frestað og hún ákveðin 1. janúar 1986?

2. Hvernig hefur sú endurskoðun verið unnin?

3. Hvenær verður hin endurskoðaða áætlun kynnt?

4. Hvað líður samningum um skiptingu hrefnuveiða milli aðila?

5. Verður notkun nýrra norskra sprengiskutla skyld samkvæmt samningnum?"