17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3155 í B-deild Alþingistíðinda. (2737)

292. mál, fjármögnun rannsókna á hvalastofninum

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég vil enn þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin og taka skýrt fram að ég er ekki á nokkurn hátt að ásaka hann um að fara ekki að þeim samþykktum Alþjóðalivalveiðiráðsins sem gerðar hafa verið eða brjóta á vilja Alþingis. Ég held að það sé hins vegar mjög nauðsynlegt að hv. Alþingi sé upplýst um stöðu þessara mála.

Það hefur hins vegar komið fram í máli hæstv. ráðh. að málið er allt í óvissu. Það liggur alveg fyrir að Japanir eru dauðhræddir við að kaupa nokkrar hvalaafurðir vegna hagsmuna sinna varðandi fiskveiðilögsögu. Samkvæmt bréfi, sem dags. er 3. des. 1985, frá öldungadeildarfulltrúanum Robert Packwood til viðskrh. Bandaríkjanna, Malcolm Baldridge og svari þess síðarnefnda, sem er dags. 3. jan. 1986, er fullkomlega ljóst að Bandaríkjastjórn hyggst beita sér kröftuglega gegn verslun með hvalaafurðir fengnum eftir gildistöku veiðistöðvunar Alþjóðahvalveiðiráðsins og gegn þeim ríkjum sem slíka verslun stunda, hvort heldur sem um útflytjendur eða innflytjendur er að ræða.

Það er því greinilegt að fyrirhugaðar vísindaveiðar eru satt að segja í biðstöðu. Mér var kunnugt að svar Shultz utanrrh. Bandaríkjanna hafði verið á þann veg að hann hvatti til þess að fresta þessari áætlun þar til Alþjóðahvalveiðiráðið hafði tekið til hennar afstöðu. Mér er hins vegar ekki alveg ljóst hvernig þessi mál horfa hér innanlands því að fyrr í vetur mátti sjá og kom ýmsum á óvart að hlutafé í Hval hf. hafði verið hækkað með útgáfu jöfnunarhlutabréfa úr rúmum 29 millj. kr. í 59 millj. Ég verð að segja að mér finnst það mikil bjartsýni miðað við hvernig þessum málum er háttað.

En það er kannske ekki aðalatriði málsins. Það sem mér leikur hugur á að vita er að nú mun dómur sá sem ráðherra minntist á í Bandaríkjunum ekki falla fyrr en einhvern tíma í júní. Vertíð byrjar hér einhvern tíma í byrjun júní. Það sem ég átta mig ekki alveg á er það hvenær verður hægt að taka ákvörðun um hvort þessar veiðar fara fram eða ekki og í hvaða röð þurfa að koma þær ákvarðanir sem valda niðurstöðum hæstv. ráðh. í þessu máli. Og ég tek það fram enn og aftur að ég öfunda hann ekki af að fást við þetta vandræðamál.