17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3159 í B-deild Alþingistíðinda. (2744)

298. mál, erlend leiguskip

Fyrirspyrjandi (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans. Hér er hreint ekki verið að amast við því eða gera athugasemdir við að skip séu tekin á leigu til einstakra ferða og til að flytja einstaka farma. Ég hygg að öllum sé ljóst að það er óhjákvæmilegt og fram hjá því verður aldrei komist. En það sem verið er að gera athugasemd við hér og vekja athygli á er það að eftir þeirri tillögu félmrh. í ríkisstj., sem fram kom 20. des., að það sé meginregla í samningum um erlend leiguskip á vegum útgerðanna að veitt verði heimild til að manna skipin með íslenskum áhöfnum, hefur alls ekki verið farið.

Ég leyfi mér að draga í efa að þær upplýsingar, sem hæstv. ráðh. veitti áðan, séu nægilega nákvæmar. Þær upplýsingar sem mér hafa borist benda til og raunar fullyrða að þessi skip séu fleiri, þ.e. að skipadeild Sambands ísl. samvinnufélaga sé með tvö vestur-þýsk kaupskip á leigu sem eru mönnuð erlendum sjómönnum og eigi von á því þriðja áður en langt um líður og að Eimskipafélag Íslands sé með þrjú erlend leiguskip, sem eru mönnuð erlendum sjómönnum, í föstum siglingum hér við landið.

Það er náttúrlega til lítils þó að ríkisstj., þegar á er knúð, gefi yfirlýsingar um að þetta skuli vera svona og svona, þegar ljóst er að íslenskir sjómenn eru að missa atvinnuna, ef hreint ekkert er eftir því farið. Það er sjálfsagt rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að leiguskipin eru færri en var um svipað leyti í fyrra, en það breytir ekki því að það hefur ekki verið farið að þeirri meginreglu að manna þessi skip með íslenskum áhöfnum til að tryggja íslenskum sjómönnum atvinnu sem ganga nú atvinnulausir allmargir, ég skal ekki fullyrða hversu margir. Tillagan sem fram kom í ríkisstj. 20. des. er því markleysa ein, því miður, og væri óskandi að ríkisstj. mannaði sig upp í að fylgja þessari samþykkt eftir og sjá svo til hvað snertir þau erlend leiguskip sem tekin eru á leigu til langs tíma að þannig sé um hnútana búið að unnt sé að manna þau með íslenskum áhöfnum.