17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3160 í B-deild Alþingistíðinda. (2748)

327. mál, hafnamál

Fyrirspyrjandi (Magnús Reynir Guðmundsson):

Herra forseti. Ég legg hér fram fsp. til hæstv. samgrh. um hafnamál. Spurningarnar eru svohljóðandi:

„1. Hvenær má vænta þess að ný fjögurra ára áætlun um hafnarframkvæmdir verði lögð fram?

2. Hefur farið fram úttekt á þjónustumöguleikum íslenskra hafna með hliðsjón af nýrri og breyttri flutningatækni (gámaflutningum)?

3. Ef úttekt hefur ekki farið fram enn, mun þá samgrh. beita sér fyrir slíkri úttekt?

4. Hve stór hluti fjárveitinga til hafna á fjárlögum þessa árs gengur til greiðslu skulda?

5. Á hve mörgum stöðum verður unnið að hafnarframkvæmdum á þessu ári og hvert er framlag ríkissjóðs til þeirra framkvæmda skv. fjárlögum?"

Í IV. kafla hafnalaga nr. 69/1984 segir, með leyfi forseta, að Hafnamálastofnun skuli „vinna að gerð áætlana um hafnarframkvæmdir til nokkurra ára í senn, en þó aldrei skemur en til fjögurra ára. Við þessa áætlunargerð ber Hafnamálastofnuninni að hafa samráð og samstarf við viðkomandi hafnarstjórnir, Hafnasamband sveitarfélaga og hafnaráð. Sérstök fjögurra ára áætlun um hafnargerðir skal gerð á tveggja ára fresti.“

Frá gildistöku núverandi hafnalaga hefur engin áætlun verið lögð fram og nýjasta áætlunin um framkvæmdir í hafnamálum átti að gilda fyrir árin 1981-1984. Það hefur því engin áætlun verið gerð fyrir árin 1985 og 1986 hvað þá fyrir árin 1987 og 1988 eins og vera ætti skv. lögunum. Þetta leiðir hugann að fjárveitingum til hafna sem sífellt hafa farið minnkandi að raungildi frá árinu 1982.

Á aðalfundi Hafnasambands sveitarfélaga, sem haldinn var 16. og 17. janúar s.l., var gerð samþykkt um að leggja áherslu á að nú þegar yrði hafin gerð hafnaáætlunar til næstu fjögurra ára svo sem fyrir er mælt í lögunum. Á þessum fundi var einnig átalinn sá mikli niðurskurður ríkisframlaga til hafna sem orðið hefur á síðustu árum. Í ályktun hafnasambandsins segir m.a. að hafnarstjórnir víða um land neyðist nú til að loka lélegum eða hálfhrundum hafnarmannvirkjum fyrir skipaumferð. Það virðist því ljóst að ríkisframlög til hafna þarf að stórauka og þá á grundvelli víðtækra og öruggra áætlana.

Ég hef hér einnig spurst fyrir um hvort fram hafi farið úttekt á þjónustumöguleikum íslenskra hafna með hliðsjón af nýrri og breyttri flutningatækni. Hér er fyrst og fremst höfð í huga sú stórkostlega aukning sem orðið hefur á útflutningi sjávarafurða í gámum, en þó nokkrar hafnir hafa ekki getað nýtt sér þessa nýju tækni sökum lélegs aðbúnaðar. Hafnirnar eru einn mikilvægasti þátturinn í íslensku athafnalífi og undirstaða gjaldeyrisöflunar þjóðarbúsins, viðskipta og verslunar. Því vildi ég m.a. með fsp. mínum, herra forseti, vekja athygli á nauðsyn aukinna fjárveitinga úr ríkissjóði til hafnamála.