17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3166 í B-deild Alþingistíðinda. (2753)

299. mál, byggðanefnd þingflokkanna

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin þó að mér finnist þau þunn að svo til öllu leyti, að öðru leyti en því að það er athyglisvert að þingflokkar stjórnarflokkanna núverandi hafa ekki svarað bréfum byggðanefndarinnar varðandi þau mál sem þar eru á dagskrá. Flokkur hæstv. forsrh. hefur ekki svarað erindi byggðanefndarinnar um hvað gera skuli. Sjálfstfl. hefur ekki gert það heldur. Þetta þarf að draga fram hér við umræður. Ég er ekki viss um að almennt hafi þm. verið kunnugt um þessar staðreyndir. A.m.k. veit ekki núverandi varaformaður Sjálfstfl. það. Það er alveg greinilegt. En þetta er auðvitað athyglisvert og sýnir í sjálfu sér nánast fordæmingu á því verkefni sem er hvað mest um vert í dag hér á landi.

Það er sjálfsagt að fara eftir þingsköpum þó að ég vildi gjarnan beina því vinsamlegast til forseta að hliðra til með þessa umræðu því hún er svo mikilsverð og fer ég ekki oft fram á mikið í þeim efnum. En ég vil sérstaklega draga þær upplýsingar fram í dagsljósið varðandi stjórnarflokkana að þeir skuli í engu sinna þessu. Og ég spyr hæstv. forsrh.: Er það rétt, sem hér var haft á orði í þessum ræðustól fyrir nokkrum dögum, að byggðanefndin hafi ekki haldið fund í átta mánuði þangað til menn höfðu nasasjón af fsp. sem hér er nú til umræðu? Ef þetta er rétt, sem ég vil hvorki segja já eða nei við, ég veit það ekki, þá sýnir það einnig viljaleysi til að leysa úr þessum verkefnum. Mér sýnist, þegar liðin eru tvö ár og ekkert liggur á borðinu handbært til að beita til lagfæringar í þessum efnum, nánast augljóst að þingið verði sjálft að fara að taka málið í sínar hendur. Ég sé ekki aðrar leiðir.

En við skulum gefa þeim umhugsunarfrest fram á vorið, sjá hvað gerist. Það er líklega rétt að taka fram að ég var sjálfur settur í byggðanefnd á sínum tíma undir forsæti núv. hæstv. forsrh. og lítið gerðist í þeirri nefnd. Það skal viðurkennt líka. Mér sýnist því að það þurfi að grípa til annarra ráða en gert hefur verið. Þingið verður sjálft að fara að knýja á um lausn í þessum efnum. Ef fram heldur sem horfir er miklum mun ískyggilegra útlit hér á landi en þó hefur verið til þessa og þykir mörgum nóg um.