17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3169 í B-deild Alþingistíðinda. (2758)

299. mál, byggðanefnd þingflokkanna

Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):

Herra forseti. Ég hygg að hæstv. forsrh. misminni að fyrrv. byggðanefnd hafi gengið frá byggðadeild við Framkvæmdastofnun. Ég minnist þess ekki að nokkurn tíma hafi verið gengið frá því máli í þeirri nefnd og ég hygg að svo sé um fleiri sem í þeirri nefnd sitja. Það skiptir kannske ekki máli héðan af. Önnur byggðanefnd er komin og er í starfi. Hæstv. forsrh. sagði að hann og hv. þm. Páll Pétursson, formaður þingflokks framsóknarmanna, treystu sínum nefndarmanni í þessari byggðanefnd. Og þá höfum við svarið. Það er frv. sem liggur á borðum hv. þdm., það hlýtur að vera. Það er augljóst mál. Þar er komið hið skriflega svar þingflokks framsóknarmanna til byggðanefndarinnar sem beðið var um. Þetta liggur í augum uppi að því er hæstv. forsrh. segir. „Við treystum okkar fulltrúa í byggðanefnd“, sagði hæstv. forsrh. (Forsrh.: Treystum í þátíð.) Treystum - það var ekki tekið fram. Nú upplýsist margt. Við treystum í þátíð, segir hann núna. Það er liðin tíð sem sagt.

En hvar er þá svarið? Ég spyr hv. þm. Pál Pétursson, formann þeirra framsóknarmanna: Hvert er þá svar Framsfl. í þessu máli ef það er ekki frv. hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar - sem ég vissi ekki betur en ætlaði að vera við umræðu og svara fyrir sig? En hann virðist vera týndur. Hann sagði mér og ég læt það fara hér: Þetta er mitt svar við byggðanefndinni, frv. Það er hans svar við byggðanefndinni. (SvG: Framsfl. er í þátíð.) Hann er í þátíð já og verður í þátíð trúlega, vonandi.