17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3169 í B-deild Alþingistíðinda. (2759)

290. mál, verðbætur á innlán og útlán banka

Fyrirspyrjandi (Stefán Benediktsson):

Herra forseti. Á þskj. 536 hef ég leyft mér að bera fram við hæstv. viðskrh. fsp. vegna verðbóta á innlán og útlán banka. Fsp. hljóðar þannig:

„Hvernig brúa bankar þann mismun sem er milli greiddra verðbóta af lánum með afborgunarkjörum og greiddra verðbóta af innstæðum á verðtryggðum reikningum?"

Ég býst við að menn spyrji sig hvers vegna svona er spurt héðan úr ræðustól en skýringar á því eru mjög einfaldar. Ég hef leitað svara við þessari spurningu í bönkum og ekki fengið svör sem ég tel raunverulega upplýsa það sem um er spurt þannig að mér flaug í hug á endanum að spyrja þann mann sem ræður eða ber ábyrgð á flestum bönkum og mestallri bankastarfsemi á Íslandi hvernig þessir hlutir eru unnir.

Það sem ég er nákvæmlega að fara inn á er það einfalda reikningsdæmi að tveir menn hafa viðskipti við banka á sama tíma. Annar leggur inn 100 kr. og hinn fær lánaðar 100 kr. Þá gerist það að þessi maður, ef hann hefur fengið lánaðar 100 kr. í eitt ár, borgar af þeim með einhverju ákveðnu millibili, t.d. þriggja mánaða millibili, og þegar hann borgar af þessu láni borgar hann 1/4 áfallinna verðbóta. 3/4 af verðbótunum eru lagðir við höfuðstólinn og þannig koll af kolli þangað til hann er búinn að borga upp lánið. Maður, sem hefur aftur á móti lagt inn til ávöxtunar og tekur út peninginn sinn samtímis og hinn maðurinn borgaði fyrstu afborgun af láninu, fær fullar verðbætur fyrir þessa þrjá mánuði af innistæðu sinni. Það þýðir að bankinn verður einhvers staðar að fá þá peninga sem hann þarf til að brúa þann mun sem er á milli þeirra verðbóta sem hann greiðir út og þeirra verðbóta sem hann tekur af fólki. Og það er það sem ég hef ekki fengið í raun og veru að fullu svar við hvaðan í ósköpunum bankarnir taka þessa peninga. Mig grunar reyndar að þessir peningar séu teknir að láni uppi í Seðlabanka í gegnum þau viðskipti sem þar eiga sér stað með refsivaxtakerfinu fræga og séu í og með ein ástæðan fyrir uppspólun á verðlagi hérna innanlands og á lánamarkaði, þ.e. þeir hafi í sjálfu sér sífelld áhrif á hækkun lánskjaravísitölu í gegnum refsivaxtakerfi Seðlabanka Íslands.