31.10.1985
Sameinað þing: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (276)
8. mál, úttekt á aðstæðum barna
Helgi Seljan:
Herra forseti. Aðeins örfá orð til stuðnings þessari till. Hér er að vísu að hluta til um margumtöluð vandamál þessa aldurshóps að ræða. Það er raunar ekkert nýtt en þau eru fjölþættari og þau hafa um leið alvarlegri afleiðingar á ævigöngu þeirra síðar meir. Mér datt í hug þegar ég las þessa till., þó að ég viti að tilgangurinn og athugunin væri söm, að kannske ættu formerkin að vera önnur, úttektin tæki til foreldranna, aðstæðna þeirra og fjárhagsstöðu eins og reyndar kom fram í máli hv. 1. flm., úttekt á erfiðleikum þeirra við að eiga samskipti við börn sín og hverjar ástæður þess eru eins og hér var komið inn á áðan einnig, þ.e. hin aukna þátttaka kvenna á vinnumarkaðinum sem að mörgu leyti ber að fagna þrátt fyrir allt, lífsstíll fólks almennt og lífsgæðakapphlaup þess. Ég er ekki að tala um kapphlaup eftir þeim gæðum sem við teljum varanleg og eðlileg heldur fyrst og fremst tilbúin, uppauglýst gæði sem fólk fer býsna mikið eftir í dag og kannske ekki síður ef það hefur nokkur tök eða efni á því og jafnvel um efni fram.
Það mætti líka hugsanlega gera úttekt á reglusemi foreldra eða kannske óreglu þeirra, leiðsögn þeirra í þeim efnum og lýsandi fordæmi þá um leið og kannske fyrst og síðast hinni ótrúlegu firringu sem orðið hefur milli kynslóðanna, þessu tengslaleysi milli kynslóða sem var áður svo til óþekkt, þannig að við gætum kannske raulað fyrir börnin eitthvað á þessa leið:
Burtu afi og amma
úti pabbi og mamma
ein með sjálfum sér.
Ég held að við eigum að hafa virkilegar áhyggjur af þessu tengslaleysi og við eigum líka að vinna að því að endurbyggja þá brú sem tengdi þessar kynslóðir. Eða hvort halda menn í alvöru að sé betri barnagæsla, amman eða vídeóið? Ég segi þetta að gefnu tilefni því að ég heyrði unga konu, sem keypti sér vídeó um efni fram á dögunum, segja: „Þetta er besta barnagæslan mín.“
Till. er þörf en að ýmsu þarf að huga, ýmsu þarf að breyta, lífsaðstöðu foreldranna kannske fyrst og síðast - þar er komið inn á hið víða kjarasvið - en lífsviðhorfinu kannske fyrst og fremst.