31.10.1985
Sameinað þing: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

8. mál, úttekt á aðstæðum barna

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég er meðflm. að þeirri till. sem hv. þm. Kristín Kvaran hefur hér mælt fyrir og mig langar til að segja fáein orð út af þeirri hugmynd sem fram kom í máli hv. síðasta ræðumanns um það að e.t.v. væri eðlilegra að sú úttekt, sem hér er lagt til að gerð verði, hefði þau formerki að hún tæki til foreldranna frekar en til barnanna. Ég held að félagslegar og fjárhagslegar aðstæður foreldra hljóti ávallt að vera órjúfanlega tengdar félagslegum aðstæðum barnanna og því hljóta aðstæður foreldranna að verða snar þáttur í þeirri könnun sem hér er lagt til að verði gerð.

Í raun og veru er í þessari till. verið að gera tilraun til að skoða þessi mál út frá sjónarhóli barnanna sjálfra, að setja sig í þeirra spor. Það tel ég mjög verðuga tilraun eins og málum er nú háttað.