17.03.1986
Sameinað þing: 61. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3176 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)
326. mál, framleiðsla bæti- og matarefna úr mjólk
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég fagna þessari fsp. og eins fram kominni þáltill. um þetta mál. Satt best að segja undrar mig það andvaraleysi sem einkennt hefur meðferð okkar á þessum málum undanfarin ár. Á sama tíma og hávær umræða er uppi um offramleiðslu á ýmsum tegundum landbúnaðarvara liggur fyrir að innflutningur á þessum sömu vörum flæðir inn í landið nær eftirlitslaust og án nokkurrar viðleitni af okkar hálfu til að takmarka hann. Þá á ég bæði við innflutning á mjólk og mjólkurvörum og einnig á ýmsum unnum kjötvörum sem flæða sömuleiðis inn í landið í alls kyns umbúðum svo að hörmulegt er upp á að horfa, hæstv. iðnrh.
Ég vona, herra forseti, að hér hafi verið hreyft við þessu máli á þann hátt að því verði fylgt eftir svo að það beri árangur. Við þurfum á því að halda.