17.03.1986
Sameinað þing: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3180 í B-deild Alþingistíðinda. (2786)
Iðgjöld bifreiðatrygginga
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég tek undir það sem hér hefur verið sagt að þær hækkanir sem orðið hafa á iðgjöldum vegna bifreiðatrygginga á undanförnum árum eru í fyllsta máta óeðlilegar og úr hófi. Í stað þess að keppast við að bjóða viðskiptavinum sínum þjónustu og reyndar að keppa hvert við annað um viðskiptavini hafa tryggingafélögin samráð sín á milli um verðhækkanir sem eru beinlínis í óhag viðskiptavina, í þessu tilfelli bifreiðaeigenda. Samt hlýtur hlutur tryggingafélaganna að vera nokkur góður í þessum efnum þegar hugsað er til þess að Íslendingar eru næstríkasta þjóð í heimi hvað varðar bifreiðaeign á íbúa.
Ég vil enn fremur taka undir það að nauðsynlegt er að endurskoða ákvæðin um iðgjöld sem þessi, og tel það mjög til athugunar að færa þau undir lög um verðlag og óréttmæta viðskiptahætti. Jafnframt vil ég taka það fram að það er brýnt að taka þessa umræðu upp hér aftur þegar hæstv. heilbr.- og trmrh. getur verið viðstödd því að vitanlega þarf hún að geta svarað í þessu máli.