17.03.1986
Sameinað þing: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3181 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)

Iðgjöld bifreiðatrygginga

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég hef ekki talið mig viðkvæman mann en ég nærri táraðist undir ræðu fyrsta hv. ræðumanns sem talaði hér áðan. En eigi að síður tek ég mjög undir hans orð og þeirra sem hafa flutt viðskrh. þakkir, enda fulI ástæða til þess því að við þurfum auðvitað menn sem þora og duga til þess að stjórna.

Það skyggir á þessa umræðu að hæstv. heilbr.- og trmrh. skuli ekki vera viðstaddur hér, en auðvitað hljóta skilaboð þingsins til hæstv. heilbr.- og trmrh. að vera þau að fara í kjölfar samninganna, gera eins og hæstv. viðskrh. hefur gert og taka fram fyrir hendur á tryggingafélögunum og lækka það sem nú hefur verið gert. Það hljóta að vera skilaboð þingsins til viðkomandi ráðherra þó að hann geti ekki verið hér sjálfur og tekið við þeim skilaboðum beint. Ég ítreka það. Við hljótum að krefjast þess af hæstv. ráðh. að hann taki hér í taumana og lækki þau gjöld sem hafa nú verið hækkuð af bifreiðatryggingum hér í landinu. Við hljótum að krefjast þess.