17.03.1986
Sameinað þing: 62. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3183 í B-deild Alþingistíðinda. (2792)
Iðgjöld bifreiðatrygginga
Iðnrh. (Albert Guðmundsson):
Hæstv. forseti. Ég verð að taka undir þá athugasemd sem fram hefur komið í málflutningi hv. fyrirspyrjanda. Ég held að mér hafi brugðið eins og flestum sem fengu reikninga frá tryggingafélögunum nýlega. Mér varð ekki um sel þegar ég sá þá miklu hækkun og ég gat ekki með nokkru móti skilið hvernig í ósköpunum það gæti átt sér stað að iðgjöld hækkuðu um 23-25% á sama tíma og bílar lækka um 30%. Ég leitaði mér smáupplýsinga og mér var sagt að varahlutir lækki ekki. Tjón og aðrar bætur vegna slysa væru mikil og tryggingafélögin hefðu verið svelt. Ég verð að trúa þessu. Ég get ekki annað fyrr en búið er að rannsaka málið. Og það held ég að sé nauðsynlegt að gera. Ég hefði gjarnan viljað láta kanna og bera saman hvert sé hlutfall trygginga í andvirði bifreiða miðað við verð bifreiða hér á landi borið saman við t.d. á hinum Norðurlöndunum. Þá ættu menn að geta komist að raun um það hvort við erum að borga óeðlilega háar tryggingar eða ekki. Ég held að svo sé.
En ég vil svo að lokum segja að að sjálfsögðu stendur Sjálfstfl. teinréttur og horfir beint framan í hvern sem er og þarf ekki að skammast sín fyrir þá stefnu sem hann hefur, hefur haft og mun alltaf hafa, og það er frjáls samkeppni á sem flestum sviðum. En hitt er annað mál að Sjálfstfl. hefur aldrei staðið að samtökum um álagningu eða samtökum um verðmyndun á neinu sviði til að koma í veg fyrir eðlilega samkeppni. Ef það er rétt að tryggingafélögin hafi myndað með sér eins konar „cartel“, eins og það er kallað á erlendu máli, auðhring til að gæta hagsmuna sinna, halda uppi verði, frekar en samkeppni, þá er það andstætt hugsjónum Sjálfstfl. og að sjálfsögðu ber okkur sjálfstæðismönnum að kanna hvort svo sé og berjasf þá á móti slíku. En ég verð bara að viðurkenna, eftir að hafa verið fulltrúi Alþingis sem bankaráðsformaður Útvegsbankans, að varla er hægt að taka ákvörðun í Útvegsbankanum fyrir „cartel“ eða Sambandi viðskiptabanka. Það er búið að viðgangast í langan tíma og ég veit ekki betur en það eigi að halda áfram að viðgangast. En í lögum bankanna segir að þeir skuli vera algerlega frjálsar og óháðar stofnanir. Það er kannske á fleiri sviðum sem þarf að taka til hendi en í tryggingamálum.