19.03.1986
Neðri deild: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3206 í B-deild Alþingistíðinda. (2805)
199. mál, alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó
Utanrrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Hér er til umræðu frv. til l. um breytingu á lögum frá 1975 um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd breytingar á samþykkt um alþjóðareglur til þess að koma í veg fyrir árekstra á sjó, en þær alþjóðareglur voru samþykktar í Lundúnum 20. okt. 1972. Með lögum frá 1975 var ríkisstj. heimilað að staðfesta fyrir Íslands hönd þessar samþykktir að alþjóðareglum til að koma í veg fyrir árekstra á sjó. Samþykktin var fullgilt 21. apríl, en öðlaðist gildi 15. júlí 1977, sbr. auglýsingar í C-deild Stjórnartíðinda nr. 6/1975 og 1977.
Það frv. sem hér liggur fyrir er til þess að öðlast heimildir til breytinga á þeim reglum sem fyrir eru, en það voru samþykktar breytingar í London 19. nóv. 1981. Hér er um að ræða smávægilegar breytingar og sem fskj. með frv. eru þessar alþjóðareglur með áorðnum breytingum frá 1971.
Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að því verði vísað til 2. umr. og hv. allshn., en frv. þetta var flutt í Ed. og hefur hlotið afgreiðslu þar með nál. á þskj. 490.