19.03.1986
Neðri deild: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3215 í B-deild Alþingistíðinda. (2812)

285. mál, lögverndun á starfsheiti kennara og skólastjóra

Menntmrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra á þskj. 523. Lagafrv. þetta er þannig úr garði gert að fyrst er fjallað um lögverndun starfsheitis, þá starfsréttindi og síðan um ráðningarreglur.

Samtök kennara hafa lengi haft á stefnuskrá sinni lögverndun starfsheitis kennara ásamt endurskoðun á lögum nr. 51/1978 um embættisgengi kennara og skólastjóra.

Haustið 1984 skýrði þáv. menntmrh., Ragnhildur Helgadóttir, frá því að hún væri reiðubúin til að skipa nefnd fulltrúa tilnefndra af kennarasamtökunum til þess að starfa með fulltrúum ráðuneytisins að því að gera tillögur að frv. um lögverndun starfsheitis kennara sem væri sambærilegt við lögverndun á starfsheiti bókasafnsfræðinga, sbr. lög nr. 97/1984. Nefndin var skipuð í október 1984 og segir í skipunarbréfi að hún skuli vinna að gerð lagafrv. um lögverndun starfsheitis kennara.

Í nefndina voru skipuð þau Hörður Lárusson deildarstjóri, Kristín H. Tryggvadóttir deildarstjóri fræðsluskrifstofu Reykjanesumdæmis, Hanna Kristín Stefánsdóttir kennari, Kristján Bersi Ólafsson skólameistari, Sigurður Helgason deildarstjóri og Sólrún Jensdóttir skrifstofustjóri sem jafnframt var formaður nefndarinnar. Þórunn J. Hafstein deildarstjóri starfaði með nefndinni allan tímann.

Þegar nefndin hóf störf kom fram að kennarar töldu lögverndun starfsheitis sambærilega við það sem bókasafnsfræðingar höfðu hlotið með lögum nr. 97 frá 1984 ekki nægjanlega þar sem þau lög fela ekki í sér lögverndun starfsréttinda. lögðu kennarar þunga áherslu á endurskoðun á lögum um embættisgengi kennara og skólastjóra nr. 51 frá 1978 samhliða lögverndun á starfsheiti. Niðurstaðan varð sú að ráðherra heimilaði fulltrúum ráðuneytisins í nefndinni að kanna hvort unnt væri með viðunandi hætti að ná samkomulagi um ein lög þar sem bæði væri kveðið á um starfsheiti og starfsréttindi án þess að skólastarfi í landinu væri stefnt í hættu sökum kennaraskorts frekar en orðið er. Á þessum forsendum hélt nefndin áfram störfum og varð sammála um það frv. sem hér liggur fyrir.

Helstu atriði í frv. þessu og þau sem greina það frá gildandi lögum um embættisgengi kennara og skólastjóra eru:

1. Lögverndun starfsheitis er nýmæli.

2. Þau skilyrði sem uppfylla skal til að öðlast starfsréttindi eru nær óbreytt.

3. Matsnefnd, sem fjallar um hvort umsækjandi um starf uppfyllir sett skilyrði, leiki á því vafi, er starfandi skv. núgildandi lögum. Í stað þess að í henni sitja fulltrúar tilnefndir frá Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands auk formanns skipaðs án tilnefningar er gert ráð fyrir að nefndirnar verði tvær. Í fyrra lagi nefnd fyrir grunnskólastigið skipuð fulltrúum tilnefndum af Kennaraháskóla Íslands, Bandalagi kennarafélaga og formanni án tilnefningar og í öðru lagi nefnd fyrir framhaldsskólastigið skipuð fulltrúum tilnefndum af Háskóla Íslands, Bandalagi kennarafélaga og formanni án tilnefningar. Aðild kennarafélaga að þessu mati er nýmæli.

4. Samkvæmt gildandi embættisgengislögum eru ákveðin skilyrði einungis sett ef um er að ræða skipun í starf, en í fyrirliggjandi frv. er gert ráð fyrir að sömu skilyrði um menntun þurfi að uppfylla til að fá setningu og ráðningu, þ.e. að óheimilt sé að skipa, setja eða ráða til kennslustarfa annan en þann sem uppfyllir þau menntunarskilyrði sem nú er krafist til skipunar.

Þetta er meginbreytingin frá gildandi lögum. Samkvæmt þeim er heimilt að setja og ráða menn til kennslustarfa þótt þeir hafi ekki full réttindi. Samkvæmt frv. þessu verður þetta óheimilt. Hins vegar er gert ráð fyrir að heimilt sé að sækja um undanþágu til að ráða réttindalausan aðila til kennslustarfa ef ókleift reynist að fá réttindamann í kennarastöðu. Í þessum tilgangi er gert ráð fyrir að menntmrn. starfræki tvær undanþágunefndir, eina fyrir hvort skólastig, og geta þær heimilað lausráðningu starfsmanna til kennslustarfa, skipaðar með sama hætti og fyrrnefndar matsnefndir.

Að lokum er gert ráð fyrir í bráðabirgðaákvæði að þeir sem hafa unnið við kennslu undanfarin ár án réttinda fái tækifæri til að afla þeirra á næstu árum.

Ég þarf ekki að vekja athygli hv. þingdeildar á því að dregist hefur mjög úr hömlu að mæla fyrir frv. þessu. Fyrir því er það að ég hef farið fram á það við formann hv. menntmn. að hann beiti sér fyrir því að nefndir beggja deilda starfi saman að vinnslu þessa máls. Ég hlýt að leggja afar mikla áherslu á framgang þess og ég lít þann veg á að þetta frv. sé hluti af nýgerðum kjarasamningum við kennarastéttina.

Ég legg til, herra forseti, að þegar 1. umr. lýkur verði máli þessu vísað til 2. umr. og menntmn. Páll Pétursson: Herra forseti. Ég vil lýsa stuðningi mínum við þetta frv. og láta það koma fram að ég tel að hér sé hið merkasta mál á ferðinni og eðlilegt sé að koma til móts við kennara með lögfestingu þessa frv. Þetta er gamalt baráttumál kennarastéttarinnar sem sjálfsagt er að koma til móts við.

Í sjálfu sér er eftirsóknarvert að efla menntun kennara og skv. bráðabirgðaákvæði í frv. er ekki tekinn réttur af neinum, þar sem leyfi skv. 1. gr. má enn fremur veita þeim sem ekki uppfyllir skilyrði þessarar greinar en hefur verið skipaður í kennarastöðu eða skólastjórastöðu fyrir gildistöku laga þessara.

Einingafjöldi hvað varðar uppeldis- og kennslufræði kann að vera álitamál. Ég er ekki tilbúinn að fullyrða að 30 einingar séu einmitt sá rétti mælikvarði. Sumir þurfa áreiðanlega miklu meira en 30 einingar til að verða góðir kennarar, en sumir geta verið góðir kennarar þó að þeir kæmust af með færri einingar. Kennarastarfið er í sjálfu sér mjög mikilvægt og það er rétt að leitast við að efla virðingu þess. Þessi frumvarpsflutningur og lögfesting þessa frv. er þáttur í því. Það væri gaman að geta haldið kennara betur í launum, en launakerfi landsmanna hefur nú þróast á þennan veg og það er kannske erfitt að hrófla þar mjög mikið við.

Það hefur gengið erfiðlega að manna skólana með réttindafólki, sérstaklega í dreifbýlinu. Réttindi eru út af fyrir sig engin trygging fyrir því að kennari sé góður, en þó eru réttindi að öðru jöfnu eftirsóknarverð og rétt að hvetja þá sem ætla sér að leggja kennslu fyrir sig til að afla sér viðeigandi menntunar. Ég vil þó taka það fram að ég tel að réttindalaust fólk hafi í mörgum tilfellum unnið mjög gott starf í skólum landsins og ég þekki dæmi þess að í mínu kjördæmi eru að störfum prýðilegir kennarar þó að þeir hafi ekki fyllsta skólanám að baki.