19.03.1986
Neðri deild: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3217 í B-deild Alþingistíðinda. (2814)
285. mál, lögverndun á starfsheiti kennara og skólastjóra
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég hlýt að gleðjast yfir því að seint og um síðir hefur verið mælt fyrir þessu stjfrv. sem lagt var fram í hv. þingdeild 20. febr. s.l. og það er sannarlega gagn að það ríki sæmileg samstaða um framgang þessa máls hér í þinginu til þess að hægt verði að lögfesta þetta frv. fyrir þinglok, en gert mun ráð fyrir því að þingi ljúki síðla í aprílmánuði. Ég mun fyrir mitt leyti stuðla að því að svo geti orðið og hef raunar ýtt á eftir því oftar en einu sinni að menntmn. deildarinnar fengi þetta mál til meðferðar. Sé einhugur um þetta mál, sem ég leyfi mér að vona að ríki í hv. þingdeild og væntanlega í Ed. líka, er enginn vandi hér á höndum og við skulum vænta þess að leikar fari svo að frv. þetta verði að lögum hið allra fyrsta.
Ég vil nefna það hér að haustið 1985 flutti ég ásamt tveimur öðrum hv. þm., hv. 2. landsk. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og hv, þm., sem þá sat hér sem varamaður, Kristófer Má Kristinssyni, frv. til l. um lögverndun á starfsheiti kennara sem gerði ráð fyrir svipaðri málsmeðferð að mörgu leyti og fram kemur í þessu frv. þó að sá kostur hafi hér verið valinn, og ég er síst að gagnrýna það, að fella saman lögverndun á starfsheiti kennara í grunnskólum og framhaldsskólum og réttindi og skyldur kennara sem kveðið var á um í öðrum lögum.
Því var lýst yfir rétt um það leyti sem frv. okkar þriggja kom fram að ríkisstj. mundi flytja frv. um málið þá á næstu vikum, en það dróst eins og menn vita og var tilefni ítrekaðrar umræðu hér á síðasta vetri að ekki var staðið við þau fyrirheit af hæstv, ríkisstj. Þegar sér í land í sambandi við þetta brýna hagsmunamál, ekki aðeins kennara heldur nemenda og foreldra, sem þarna eiga óskiptan hlut að máli, þetta er stórt mál sem varðar landsmenn alla, skiptir miklu að það komist seint og um síðir í höfn.
Ég vænti þess að sú skipan mála sem hér eru gerðar tillögur um verði bæði til þess að efla skólastarf almennt í landinu, innra starf skólanna, en einnig til þess að auk:a veg kennarastéttarinnar og skila sér í launum henni til handa þannig að endir verði bundinn á þá þróun, sem hefur verið í gangi, öfugþróun, að fjöldi manna, karla og kvenna, sem hafa menntað sig til starfa í skólum, hafa öðlast full kennararéttindi, hefur vegna launakjara og aðstæðna sem skólunum eru búnar, bágra aðstæðna í mörgum greinum, kosið að hverfa til annarra starfa. Þannig er fjöldi manna sem hefur menntað sig til kennarastarfa við önnur störf í þjóðfélaginu og hefur ekki horfið að því sem hugur þeirra upphaflega stóð til.
Ástandið í sambandi við skipan í kennarastöður í landinu nú er öllum þekkt, svo ljóslega sem það hefur verið dregið upp m.a. af samtökum kennara á þessum vetri. Tvö kjördæmi landsins, tveir landshlutar, Vestfirðir og Austurland, eru þannig staddir í þessum efnum að aðeins rétt röskur helmingur kennara í skólum þar hefur fyllstu réttindi til starfa og skortir verulega á samkvæmt ákvæðum þessa frv.
Það er alveg rétt, sem síðasti ræðumaður, hv. 2. þm. Norðurl. v., nefndi hér, að margt af því fólki sem þarna er starfandi eru ágætir starfsmenn, en það breytir ekki þeirri staðreynd að það eru fyllstu ástæður til þess að tryggja fyllstu réttindi og gera fyllstu kröfur til kennarastarfsins og innleiða þá skipan sem hér er lögð til.
Ég hygg að ýmsir kennarar telji að undanþáguákvæði skv. þessu frv. séu helst til rúm. Hér er hins vegar um að ræða málamiðlun milli þeirra aðila sem settir voru til verka af ráðuneyti og samtökum kennara til að koma sér saman um þessi efni og ég hygg að eftir atvikum geti allir sæmilega við það unað og þau ákvæði sem eru til bráðabirgða í þessu frv. skapa svigrúm fyrir þá menn sem starfa að kennslustörfum og ekki hafa tilskilin réttindi skv. þessu frv. til að bæta þar úr.
Ég hlýt hins vegar að gera til þess kröfu og bera fram óskir um það að stjórnvöld greiði götu þess fólks sem nú starfar við kennslustörf og skortir á fyllstu réttindi, auðveldi þeim að bæta þar úr og afla sér réttinda eins og tilskilið er. Hér er gert ráð fyrir sérstakri reglugerð um þau efni. Ég tel að það megi ráða bót á þessu með ýmsum hætti og það þurfi að hafa í huga að verst er ástandið úti í dreifbýlinu að þessu leyti. Ég hygg að það hljóti að koma til álita að gefa mönnum þar kost heima fyrir, sem næst sínum heimilum, á því að ráða bót á því sem á vantar í sambandi við kennsluréttindi þannig að a.m.k. að hluta til geti komið til nám í heimahéraði eða í viðkomandi fræðsluumdæmum.
Ég vil svo að endingu, herra forseti, vænta þess að þetta mál fái skjóta meðferð á vegum deilda þingsins. Auðvitað hljóta þingdeildir að athuga mál svo sem vert er, gæta þess að tekin sé rétt stefna, en ég heyri það á hæstv. ráðh. að hann leggur áherslu á að málið verði afgreitt og formaður þingflokks Framsfl. hefur tekið undir það svo að við skulum vænta að hér verði engin ljón í veginum og þessi nýskipan öðlist lagagildi innan skamms.