19.03.1986
Neðri deild: 65. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3219 í B-deild Alþingistíðinda. (2816)
285. mál, lögverndun á starfsheiti kennara og skólastjóra
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Ég get gert líkt og fyrri ræðumenn að lýsa yfir eindregnum stuðningi mínum við frv. sem hér liggur fyrir til umræðu.
Hæstv. menntmrh. minntist á það í framsöguerindi sínu að þetta frv. væri í raun og veru hluti af kjarasamningum kennara, þ.e. að lögvernda starfsheiti þeirra og starfsréttindi við kennslu í grunnskólum og framhaldsskólum. Ég hygg að menn verði að gera sér fulla grein fyrir því að þó að svo hafi til skipast í þjóðfélaginu að það hafi komið í hlut kennara að berjast fyrir þessum réttindum sínum, starfsréttindum, er þetta alls ekki þeirra einkamál heldur er þetta mál þjóðarinnar allrar, þ.e. að hagur þjóðarinnar er ekki minni í þessu máli en kennaranna sem starfsstéttar. Í umræðunni um lögverndun starfsheitis kennaranna í blöðum og víðar hefur því verið haldið fram að það sé bara brauðstrit kennaranna sem birtist í þessari kröfu um lögverndun og sýnir það í raun og veru hvaða viðhorf margir hafa til kennslumála hér í landi.
Það gegnir furðu hversu það hefur dregist að fá þessi sjálfsögðu réttindi og þessar sjálfsögðu skyldur kennara lögfestar. Sem betur fer virðist þetta nú munu ganga í gegn. En engu að síður er ástandið í launamálum kennara og aðstaða þeirra í starfi þannig að það er Íslendingum til háborinnar skammar. Ég hlýt aðeins að koma að því máli í tengslum við það mál sem hér er til umræðu úr því að það er lagt fram sem hluti af kjarasamningum kennara í þeirra kjarabaráttu.
Þess er fyrst að geta að mikill flótti er úr stéttinni og það sem brennur á börnum og foreldrum er að sjálfsögðu að réttindalausir kennarar verða æ fleiri og vinnubrögðin þar af leiðandi almennt lakari. Svo er komið að í heilum landshlutum er kannske meira og minna helmingur af öllum kennurunum réttindalaus. Það undrar mig stórlega hvað dreifbýlisþingmenn hafa verið dæmalausir deyfingjar í að krefjast þess að börn þeirra fái jafngilda og góða menntun og gerist hér í þéttbýlinu. Menning og menntun er grundvallaratriði hvað snertir dreifbýlið. Dreifbýlismenn verða að hugsa örlítið meira en um þorskinn sinn og sauðkindina.
Ég vil benda á að vanmat þessa þjóðfélags er slíkt á kennurum og starfi þeirra að þjóðfélaginu þykir hæfa eða öllu heldur ráðamönnum að hafa bílastyrki handa bankastjórum sem nema 15 árslaunum kennara og það þykir hæfa að forustumaður í þjóðfélaginu skreppi til Kóreu á fund að sögn til þess að tryggja sjálfstæði þjóðarinnar og sú ferð kostar 25 árslaun kennara. Þetta þykir ekki tiltökumál. En þegar verið er að berjast fyrir réttindum og launum kennara er andsvarið ekkert. Þá segja þeir: Verðbólguvandræði - og: Það er ekkert fé til. Ég hygg að það sé kominn tími til þess, og ég beini því til hæstv. menntmrh. Sverris Hermannssonar, sem situr mér til vinstri handar, að hann af sínum ágæta dugnaði taki nú upp einhverja almenna heildarstefnu í kennslu- og menntamálum þjóðarinnar, það verði einhvern tíma talað almennt um hvað vaki fyrir þessari þjóð í þeim málum. Hvað vill þessi þjóð í kennslu- og menntamálum? Það þarf að hafa einhverja stefnu. Hér er allt leyst frá degi til dags. Ég skal nefna 2-3 dæmi til fróðleiks.
Það er t.d. verið að úthluta listamannalaunum upp á 4 millj. kr. handa 40 listamönnum. Hvaða fé er það? Ég get upplýst þingdeildina að þessar 4 millj. eru söluskattur af einni bók sem Háskólinn gaf út og heitir Íslensk samheitaorðabók. Það er söluskattur af einni bók. Svo kemur íslenska þjóðfélagið og er að veita 40 listamönnum laun sem nema söluskatti af einni bók! Svo koma starfsstyrkirnir o.s.frv. - Það þarf að taka öll þessi mál til heildarendurskoðunar.
Ég minnist á að söluskatturinn af bókum hér er svo hár að þeir sem skrifa bækurnar lepja dauðann úr skel. Svo er þjóðfélagið orðið svo undarlegt að sá maður sem teiknar kápumynd á bókina fær jafnháa upphæð og sá sem skrifar bókina. Það þarf að taka þessi mál föstum tökum, þ.e. fá einhverja allsherjar stefnu í þessum málum.
Í kennslumálum vil ég minnast á eitt smáatriði. Við erum að burðast með tvo stóra háskóla. En hvers vegna erum við með tvo skóla? Er ekki rétt að flytja kennslu í ýmsum almennum greinum yfir í Háskólann og láta Kennaraháskólann um að kenna uppeldis- og kennslufræði? Við erum að burðast með tvöfalt kerfi.
Þetta eru ærin verkefni. Á öllum sviðum kennslu- og menntamála blasa við stórfelld verkefni, en Alþingi Íslendinga hefur yfirleitt ekki tíma til að ræða um slíka hluti. Það er miklu skemmtilegra og miklu meira spennandi að ræða um útflutning hrossa, sérstaklega ef á að setja lagaákvæði um að hrossin eigi að vera heilbrigð þegar þau eru flutt úr landi.
Ég vil beina því til hæstv. menntmrh., vegna þess að ég veit af eigin reynslu að hann er skörungur, að hann mundi reisa sér verulegan bautastein ef hann reyndi að samhæfa þetta og mynda í fyrsta skipti í sögu íslenska lýðveldisins einhverja menntastefnu. M.a. vil ég benda á að stokka upp bæði í háskólakerfinu, í sambandi við styrk og laun til listamanna, um söluskatt af bókum o.s.frv., reyna að fá eitthvert vit í þessa hluti.
Í sambandi við þetta frv., svo að ég snúi mér aftur að því, er eitt atriði sem fer illa í mig. Það er sú hugmynd og er studd af voldugum hagsmunahópi að nám eigi að vera 30 einingar í kennslu- og uppeldisfræði til að geta kennt í menntaskóla eða á framhaldsskólastigi. Þetta er ekkert vit. Maður sem kennir aðalgrein í menntaskóla eða framhaldsskóla á að hafa 60 einingar í sinni þekkingar- og fræðslugrein. Þetta er of lítið í raun og veru. Hins vegar þarf 30 einingar til að læra uppeldis og kennslufræði. Heilt ár eiga menn að vera að læra að kenna og margt af þessu er með undarlegum hætti. Ég tel að þarna eigi að gera breytingu á. Kennslu- og uppeldisfræði á ekki að nema nema 15 einingum, það er nóg, og færa á þessar afgangs 15 einingar yfir á þekkinguna í þeirri grein sem verið er að læra. En það er erfitt að breyta þessu, hæstv. menntmrh., vegna þess að þú færð á þig stóran hagsmunahóp sem kennir uppeldis- og kennslufræði í skólunum. Engu að síður er nauðsynlegt að gera þessa breytingu. Það er svo mikið atriði að skapa þekkingu í þeirri grein sem maður er að kenna, þ.e. í faggreininni. Þetta er mjög nauðsynlegt.
Ég er víst búinn að tala hér allt of lengi, en ég ætla aðeins að segja smágamansögu, með leyfi herra forseta. Öllum er ljóst að Íslendingar eru ákaflega hamingjusöm þjóð og það gerast daglega með henni stóratburðir, m.a. sá að það fæddist með henni fallegur krangi í Garðastræti. Og þessi krangi var svo fagur og vel skapaður og lögulegur að allir vildu eigna sér hann. Þessi hnokki var með gullna lokka sem féllu niður á bak og hann var með blíð augu. Hæstv. fjmrh., sem hér er því miður ekki, var sagður eiga krógann. Og í Morgunblaðinu, sem ókindur kalla „fréttablað Hvíta hússins“, var sagt að Þorsteinn Pálsson hefði sýnt manndóm sinn með þessum samningum og má það telja mikil tíðindi því hann var ærinn fyrir. En þetta dugði nú ekki því fleiri vildu eiga krógann.
Á þingi framsóknarmanna var því lýst yfir að hæstv. forsrh. hefði átt frumkvæðið að þessum samningum og hefði hann þar með sýnt mikla karlmennsku og var hún þó ærin fyrir. En ekki var það nóg. Þessi fallegi hnokki, hann var berleggjaður, hann var klæðlaus og það rann viðskrh. mjög til rifja svo hann lét kaupa bleyjur á barnið og þá komu forustumenn ASÍ og færðu viðskrh. blómakörfu, ilmandi blómakörfu. Síðan kom yfirlýsing um það frá Verkamannasambandinu að víst ættu þeir og atvinnurekendur krógann og enginn, enginn annar. Það hefði sést til þeirra í útreikningum og við útlistanir og þeir hefðu verið staðnir að verki og það þyrfti engan þriðja aðila til þess að búa til slíkt barn. Svo allir vildu eiga þetta fallega barn.
En þó var til hópur, ófélegur hópur sem nöldrar. Það var fólk sem hefur laun undir 35 000 kr. á mánuði. Það sagði: Þetta barn hefur sultardropa í nefi. Þetta er ekki okkar barn. En við hinir vitum að þetta fólk, sem hefur minna en 35 000 kr. á mánuði, það þekkir ekki sína eigin gæfu. Við vísum slíku á bug. Og ég veit að íslenska þjóðin, næst þegar hún elur barn, að ári liðnu, þá væntum við þess að þá verði enginn sultardropi í nefi. Eða hvað halda alþingismenn?
Herra forseti. Ég lýk máli mínu því mér leiðist allt nöldur.