20.03.1986
Sameinað þing: 63. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3233 í B-deild Alþingistíðinda. (2825)
11. mál, mat heimilisstarfa til starfsreynslu
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Sú afgreiðsla sem hér er lögð til af hálfu meiri hl. hv. allshn. í þessu máli er fráleit, styðst við engin rök og verður Alþingi til skammar ef málinu er vísað frá með þeim hætti sem hér er lagt til. Það er fráleitur rökstuðningur að vísa þessu máli frá á þeirri forsendu að till. fjalli um efni sem beri að semja um í kjarasamningum en ekki ákvarða með fyrirmælum frá Alþingi.
Spurning er: Hvar vilja þeir hv. þm., sem undir þennan rökstuðning skrifa, draga mörkin að því er varðar afskipti Alþingis af kjarasamningum? Kjör launafólks í landinu, þar með talið hvað launafólk fær upp úr launaumslögunum fyrir vinnu sína, hafa meira og minna á undanförnum árum verið ákvörðuð með fyrirmælum frá Alþingi. Þar telur Alþingi sig þurfa að hafa afskipti af, en þegar lagt er til að Alþingi lýsi yfir þeim vilja sínum að réttur sé hlutur þess fólks sem býr við hvað minnst réttindi í þjóðfélaginu er lagt til að Alþingi vísi málinu frá á þeirri forsendu að það komi máli ekki við, þetta sé verkefni aðila vinnumarkaðarins en ekki Alþingis. Ef einhvern tíma er nauðsynlegt að Alþingi hafi áhrif á kjarasamninga er það ekki síst til að gæta réttar og hagsmuna heimavinnandi fólks sem á undir högg að sækja í kjörum og réttindamálum þegar það leitar á vinnumarkaðinn eftir að hafa varið stórum hluta ævi sinnar í ólaunuð og réttindalaus heimilis-, uppeldis- og umönnunarstörf. Það er kominn tími til að við hv. þm. áttum okkur á því að heimavinnandi fólk er sá þjóðfélagshópur sem býr við hvað mest réttindaleysi í þessu þjóðfélagi, hópur sem á mikið undir því komið að Alþingi hafi skilning á störfum þeirra og tryggi þeim þau réttindi sem aðrir hafa og þykja sjálfsögð í þjóðfélaginu.
Lítil umræða hefur farið fram á hv. Alþingi til að bæta réttarstöðu þess fólks sem sinnir þeim mikilvægu störfum sem heimilisstörfin eru. Sem betur fer hefur orðið nokkur breyting á á undanförnum árum. Til að mynda hafa komið fram á undanförnum árum á Alþingi nokkrar tillögur sem lúta að því að tryggja heimavinnandi fólki lífeyrisréttindi.
Að því er varðar að meta heimilisstörf til starfsreynslu hygg ég að það hafi fyrst komið fram á Alþingi á árinu 1983 í frv. sem ég flutti ásamt nokkrum öðrum hv. þm. Þar var um að ræða ýmsa þætti til að rétta hlut kvenna á vinnumarkaðinum og þar á meðal þennan þátt að meta heimilisstörf til starfsreynslu. Kvennalistakonur hafa kosið að draga út þennan einstaka þátt og flytja um það sérstaka þáltill. sem flutt var á síðasta þingi og aftur nú þannig að nokkur breyting er að verða hér á.
En að því er varðar réttindaleysi heimavinnandi fólks vil ég aðeins nefna hér örfá dæmi. Það hefur ekki aðgang að lífeyrissjóði og því mjög takmörkuð lífeyrisréttindi. Störf heimavinnandi fólks eru eina vinnuframlagið í þjóðfélaginu sem ekki eru greidd laun fyrir og því fylgja lítil sem engin félagsleg réttindi. Heimavinnandi fólk: situr ekki við sama borð og aðrir hvað varðar skattlagningu, ekki hvað varðar fæðingarorlof eða sjúkradagpeninga. Þegar heimavinnandi fólk heldur út á vinnumarkaðinn og á að baki kannske 15-20 ára starf við ræstingar, matargerð, þvotta og umönnunar- og uppeldisstörf er starfsreynsla þess lítils metin og heimavinnandi fólk verður oft að sæta því að ganga inn í byrjunarlaun í störfum á vinnumarkaðnum sem eru skyld heimilisstörfum. Það er lágmark að Alþingi lýsi yfir þeim vilja sínum að heimilisstörf verði metin til starfsreynslu á vinnumarkaðnum og að heimavinnandi fólk þurfi ekki áfram að búa við það að litið sé á það sem fólk með enga starfsreynslu sem aldrei hafi komið nálægt þeim störfum sem eru skyld heimilisstörfum á vinnumarkaðnum og sé því notað sem ódýrt vinnuafl í þessu þjóðfélagi.
Af þeim brtt. sem fram eru komnar vegna afgreiðslu meiri hl. allshn. á þessu máli verður að ætla sem betur fer að ekki sé meirihlutavilji á hv. Alþingi að afgreiða málið með þeim hætti sem meiri hl. allshn. leggur til. Brtt. hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar og Salome Þorkelsdóttur, sem dregin hefur verið til baka en flutt um sérstök þáltill., gengur allt of skammt, auk þess sem sú málsmeðferð er allsérkennileg að tefja afgreiðslu málsins með þeim hætti að flytja um málið sjálfstæða tillögu sem aftur gangi til nefndar. Beinast hefði auðvitað legið við fyrir þessa hv. þm. að flytja brtt. við þáltill. sem nú er til afgreiðslu og liggur fyrir hér um sama efni.
Ég vil fara örfáum orðum um till. hv. þm. Stefáns Valgeirssonar o.fl. sem hér er fram borin. Hv. þm. Stefán Valgeirsson hafði um það áðan nokkur orð að ekki væri ástæða til að skilgreina heimilisstörf. Ég er honum hjartanlega sammála um það vegna þess að allir ættu að vita í hverju heimilisstörfin felast, enda hefur hvorki í till. Kvennalistakvenna né þeim brtt. sem fram hafa verið lagðar komið fram nein skilgreining á heimilisstörfum nema í till. hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Því er það spurning, ef hann telur ástæðulaust að skilgreina heimilisstörf á þeirri forsendu að allir ættu að vita hvað felst í heimilisstörfunum, af hverju hv. þm. telur ástæðu til að draga út einstaka þætti í heimilisstörfunum eins og hann gerir í sínum brtt.
Brtt. þeirra framsóknarmanna undir forustu Stefáns Valgeirssonar er því allsérstæð og lýsir því svo að ekki verður um villst að þessir hv. þm. vita raunverulega ekki hvað í heimilisstörfum felst og því ekki skrýtið þó að lítið hafi þokað í réttindamálum heimavinnandi fólks á þeim allt of langa tíma sem framsóknarmenn hafa setið við stjórnvölinn á undanförnum árum.
Í brtt. þeirra vilja þeir láta meta starfsreynslu við ólaunuð heimilisstörf vegna barnauppeldis og umönnunar. En heimilisstörf eru auðvitað meira en barnauppeldi og umönnunarstörf. Maturinn kemur ekki af himnum ofan á diska þeirra hv. þm. sem skilgreina heimilisstörf eingöngu sem barnauppeldi og umönnunarstörf. Eða þrifin og þvottur á heimilunum eða ýmis þjónustustörf, svo sem fatasaumur. Þau gerast ekki af sjálfu sér. Er meining þessara hv. þm. að undanskilja þessa þætti í heimilisstörfunum þannig að til að mynda konur sem vinna hjá hinu opinbera við matargerð eða þrif fái ekki sína starfsreynslu metna?
Nái sú brtt. sem Kjartan Jóhannsson er 1. flm. að á þskj. 609 ekki fram að ganga er nauðsynlegt að gera breytingu á till. hv. þm. Stefáns Valgeirssonar o.fl. því að hún er meingölluð eins og ég hef áður lýst. Ef það er nauðsynlegt á annað borð að skilgreina heimilisstörf eins og hv. þm. Stefán Valgeirsson gerir tilraun til verður sú skilgreining að vera víðtækari og ná til allra þátta heimilisstarfanna. Það er því nauðsynlegt, og ég legg mikla áherslu á það, að samþykkja brtt. við brtt. Stefáns Valgeirssonar o.fl., sem fram er borin á þskj. 657, þannig að Alþingi láti ekki frá sér fara svo meingallaða till. sem till. þeirra framsóknarmanna er.
Annars vil ég taka undir það, sem fram kom í máli síðasta ræðumanns, hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar, að eðlilegast hefði auðvitað verið, miðað við allar þær brtt. sem fram hafa komið við þetta mál, að allshn., sem hefur haft málið til meðferðar og hlýtur að sjá að það er meirihlutavilji fyrir því á Alþingi að meta heimilisstörf til starfsreynslu, taki allar þessar brtt. til meðferðar á nýjan leik og reyni að samræma sjónarmið í þessu máli þannig að fram komi hér ein brtt. sem allir hv. þm. geta staðið að. Ég óttast hreinlega, miðað við þær mörgu brtt. sem hér hafa verið lagðar fram, að svo geti farið að engin þeirra nái fram að ganga og vil ég vara við því. Þess vegna hefði ég talið það eðlilegri málsmeðferð og beini því raunar til formanns allshn. hvort hann telji ekki rétt að óska eftir frestun á þessari umræðu þannig að allshn. megi taka þessar tillögur allar aftur og endurskoða þær í ljósi þeirra umræðna sem orðið hafa um þessi mál og í ljósi þess fjölda brtt. sem fram hefur komið. Eins og ég segi óttast ég að svo geti farið að við stöndum kannske frammi fyrir því í lokin að engin af þessum tillögum nái fram að ganga og tel ég að það sé ábyggilega ekki vilji þeirra þm. sem hér hafa talað og vilja framgang þessa máls.