20.03.1986
Sameinað þing: 63. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3247 í B-deild Alþingistíðinda. (2834)
Deila rafeindavirkja og ríkisins
Helgi Seljan:
Herra forseti. Það er full ástæða til að vekja athygli á ástandi sem er að verða býsna alvarlegt og getur orðið hreint neyðarástand í okkar fjarskiptamálum og ber að þakka hv. 5. landsk. þm. að hann skuli flytja þetta mál hér inn. Ég geri mér grein fyrir því að vissulega er um viðkvæma deilu að ræða og það er eflaust erfitt um að véla. Hér verða hins vegar allir að leggjast á eitt. Ég held að það fari ekki á milli mála að hæstv. fjmrh. verður að hafa frumkvæði um lausn hvað sem líður túlkun á réttmæti aðgerða og skoðunum á því, úrskurði félagsdóms og það sem þar er sagt. Hér er um þannig mál að ræða að þar verður lausnar að leita. Það hlýtur að vera hæstv. ráðherra að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að á þessu fáist lausn.
Fjarskiptasamband, símasamband innanlands og milli landshluta er orðinn svo snar þáttur, svo ómissandi þjónustuþáttur í okkar lífi, eins og hv. 5. landsk. þm. benti á, að hér verður rösklega að að vinna og fá að sjálfsögðu sem vitrænasta og eðlilegasta lausn á þessu deilumáli.