20.03.1986
Sameinað þing: 63. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3247 í B-deild Alþingistíðinda. (2836)
Deila rafeindavirkja og ríkisins
Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Það olli mér vonbrigðum þegar hv. 2. þm. Austurl. sagði í ræðustól á hinu háa Alþingi að það yrði að finna lausn á þessu máli hvað sem liði úrskurði félagsdóms. Að vísu ætla ég ekki að gera neina tilraun til að snúa út úr þessum orðum. Þau má vafalaust túlka á ýmsan veg. Ég vænti þess hins vegar að með þessu hafi hv. þm. ekki verið að vanvirða niðurstöðu félagsdóms eða ætlast til þess að fjmrn. og fjmrh. haldi á þann veg á þessu máli að ekki verði tekið tillit til alveg ótvíræðrar dómsniðurstöðu. Við búum einfaldlega í réttarríki, hljótum að taka afstöðu til þessa máls eins og annarra á grundvelli gildandi laga og í þessu efni liggur fyrir niðurstaða dóms um ágreiningsatriði.
Það kom fram í ræðu hv. 5. landsk. þm. að hann hafði ekki kynnt sér dómsniðurstöðuna, en þar er verkfallið dæmt ólögmætt vegna þess að þær uppsagnir sem fyrir hafa legið eru ekki taldar gildar. Þær eru ekki taldar fela í sér uppsögn á starfi sem opinber starfsmaður og því fer um réttindi og skyldur þessara manna samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Hjá þessu verður ekki vikist. Þetta er niðurstaða dómsins. Og ég beini því til hv. 5. landsk. þm. að hann kynni sér dómsniðurstöðuna að þessu leyti.
Það var afstaða fjmrn. og reyndar allra þeirra ráðuneyta sem hér eiga hlut að máli að þessar uppsagnir væru ógildar og sú niðurstaða er staðfest með dómi félagsdóms. Eðlilega geta ekki farið fram kjarasamningaviðræður við aðila sem eru í ólögmætu verkfalli. Það þykist ég vita að hv. þm. geri sér grein fyrir og hljóti að vera mér sammála um.