31.10.1985
Sameinað þing: 10. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 340 í B-deild Alþingistíðinda. (286)

10. mál, nefnd til að kanna rekstur Innkaupastofnunar ríkisins

Flm. (Kristín S. Kvaran):

Virðulegi forseti. Vegna orða hæstv. fjmrh. áðan vil ég aðeins koma að orðum hans þar sem mér fannst nánast eins og hann væri að ýja að því að sökin sem þessi till. bendir á sé endanlega bankastofnunarinnar. En sú sök sem ég er að tala um í þessari þáltill. og flm. taka undir er sú sem lýtur að skattgreiðendunum og kom fram í máli síðasta ræðumanns. Það er hún og það er vissulega sorglegt til þess að vita að hæstv. fjmrh. skuli segja úr ræðustól að sökin eða skaðinn sé bankans. Á meðan eða áður en uppvíst varð um verknaðinn er það auðvitað augljóst að féð hefur verið dregið út af reikningum Innkaupastofnunarinnar, jafnvel þó svo að ríkisbankinn hafi síðan aftur borgað inn á reikninginn þegar uppvíst varð um að um misferli var að ræða. Það er aftur annað mál. Tilgangurinn með þessari till. er einmitt sá að koma í veg fyrir að slíkt geti átt sér stað án þess að eftir verði tekið, að tekin sé út hærri upphæð en í rauninni var gefin úf ávísun upp á.

Annað sem hæstv. fjmrh. var að ýja að án þess þó í raun að segja það hér úr ræðustól var að tilgangurinn með flutningi tillögunnar væri ekki alveg á hreinu. Tilgangurinn er alveg á hreinu. Tilgangurinn er sá að skipuð verði rannsóknarnefnd þm. til þess að kanna rekstur Innkaupastofnunarinnar. Hins vegar hefur gagnsemi stofnunarinnar verið dregin mjög í efa, það er alveg rétt. Og það kemur fram í grg. þar sem segir: „Gagnsemi þessarar stofnunar hefur verið dregin mjög í efa og flutt var um það þáltill. af hálfu Bandalags jafnaðarmanna á síðasta þingi að leggja bæri niður starfsemi framkvæmdadeildar Innkaupastofnunar ríkisins.“

Mig langar þá til að fá að beina hér að síðustu spurningu til hæstv. fjmrh. um það hvort hann sé mótfallinn því að þingið sinni eftirlitshlutverki sínu og skipi slíka nefnd vegna þess að ég er ansi hrædd um að þó að ekki kæmu til hagsmunaárekstrar milli fjvn. annars vegar og Innkaupastofnunarinnar hafi fjvn. ærið verkefni á sinni könnu þó að ekki kæmi til að farið væri að bæta slíkum verkefnum á hana.