24.03.1986
Neðri deild: 67. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 3281 í B-deild Alþingistíðinda. (2877)
372. mál, vinnudeila Mjólkurfræðingafélags Íslands
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Mál þetta er þess eðlis að okkur þm. Alþfl. þótti sjálfsagt að greiða fyrir því og munum greiða fyrir því að það geti fengið hér sem skjótasta afgreiðslu. Hins vegar gerum við ráð fyrir því og ætlumst til þess að í starfi nefndarinnar, sem fram undan er, komi fram sem gleggstar upplýsingar um stöðu þessara mála, um viðhorf deiluaðila, um raunveruleg kjör þeirra aðila sem hér um ræðir og um mat sáttasemjara á aðstæðum og sáttahorfum. Á grundvelli þeirra upplýsinga munum við síðan móta endanlega afstöðu okkar þegar frv. kemur til 2. umr.